Hvernig geta samvinnufélög í dreifbýli stækkað án þess að glata sálinni?
Þann 11. febrúar fór fram vefnámskeið á vegum MERSE-verkefnisins undir yfirskriftinni Scaling up cooperation in Rural Areas. Alls tóku 45 þátttakendur þátt víðs vegar að úr Evrópu og var þar varpað fram einni kjarnaspurningu: Hvernig geta samvinnufélög vaxið án þess að fórna lýðræði, sjálfbærni og staðbundnu eignaraðild? Þátttakendur komu frá Svíþjóð, Noregi, Írlandi, Finnlandi, Íslandi, Rúmeníu, Ítalíu og fleiri löndum. Hópurinn var fjölbreyttur; fræðafólk, fulltrúar sveitarfélaga, ráðgjafar í atvinnuráðgjöf og samvinnurekstri og frumkvöðlar í dreifbýli - góð blanda ólíkra aðila sem koma að byggðaþróun með einum eða öðrum hætti.
20. febrúar 2026