17. nóvember 2026
Störf í boði
Bolungarvíkurkaupstaður auglýsir laust til umsóknar starf skipulags- og byggingafulltrúa. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf þar sem viðkomandi kemur að skipulagsmálum, byggingarmálum og þróun sveitarfélagsins í nánu samstarfi við kjörna fulltrúa, starfsfólk og íbúa. Starfshlutfall er 100% og æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með lögbundnum verkefnum byggingafulltrúa samkvæmt lögum og reglugerðum
- Afgreiðsla byggingarleyfa, framkvæmdaleyfa og annarra erinda á sviði mannvirkja
- Umsjón með skipulagsmálum sveitarfélagsins og eftirfylgni skipulagsáætlana
- Ráðgjöf við bæjarráð, bæjarstjórn og nefndir um skipulags- og byggingarmál
- Samskipti við hönnuði, verktaka, íbúa og opinberar stofnanir
- Eftirlit með framkvæmdum og mannvirkjagerð eftir því sem við á
- Önnur tilfallandi verkefni á starfssviði embættisins
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Réttindi til að gegna stöðu byggingafulltrúa
- Réttindi til að gegna stöðu skipulagsfulltrúa er kostur
- Þekking og reynsla á sviði byggingarmála
- Þekking og reynsla á sviði skipulagsmála er kostur
- Þekking á skipulagslögum, mannvirkjalögum og stjórnsýslu er æskileg
- Færni í mannlegum samskiptum og þjónustulund
- Góð almenn tölvukunnátta og þekking á upplýsingatækni
- Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti