Stuðningsfjölskyldan býður barninu að dvelja á heimili sínu og að taka þátt í daglegu lífi þeirra. Mismunandi markmið eru með úrræðinu og fara þau eftir þörfum barns og fjölskyldu þess. Slíkri umsjá fylgir ekki krafa um sérstaka þjálfun eða hæfni umfram þá daglegu þjálfun sem felst í almennum kröfum er lúta að barnauppeldi. Stuðningsfjölskylda er ekki til þess falin að leysa margþættan eða umfangsmikinn vanda ein og sér en er mikilvægur þáttur í því að styrka foreldra og barn.
16. nóvember 2026
Störf í boði
Fjölskyldusvið leitast eftir því að ráða stuðningsfjölskyldu(r) fyrir barn/börn.
Verkefni stuðningsfjölskyldu er að
- Annast barn í skamman tíma til að draga úr álagi á fjölskyldu barnsins
- Veita barninu tilbreytingu og stuðning
- Gefa barni kost á auknum félagslegum tengslum
Umsóknarfrestur er til og með 30. nóvember 2026
Nánari upplýsingar veitir félagsráðgjafi fjölskyldusviðs.
Theodóra Jóhannsdóttir - theodora@vesturbyggd.is - 450-2300