Kynntu þér atvinnulífið
Heimsæktu fyrirtæki og þátttakendur, fáðu innsýn í starfsemina og sjáðu hvað verður til í sjávarþorpum, bæjum og byggðum um alla Vestfirði.
Þar sem hugmyndir blómstra, tengsl myndast og framtíðin fæðist.
Komdu í heimsókn og kynntu þér kröftugt atvinnu- og menningarlíf um alla Vestfirði. Á bæjarhátíðum ársins opna fyrirtæki og þátttakendur dyr sínar, sýna hvað býr að baki og bjóða gestum að kynnast hugviti, menningu og kraftinum sem mótar svæðið.

Hér má sjá viðburði Gullkistunnar í tímaröð og hvaða fyrirtæki bjóða gestum í opið hús hverju sinni. Smelltu á viðburð til að sjá nánari upplýsingar.
Opin hús 17. júlí kl. 14:00–17:00
Opna viðburðarsíðuOpið hús á Tálknafirði kl. 12:00–14:00. Markaður kl. 14:00–17:00.
Eftirfarandi fyrirtæki bjóða heim föstudaginn 14. ágúst frá kl 11:00-13:00
Opið hús og þátttaka fyrirtækja verður sett inn þegar upplýsingar liggja fyrir.
Opið hús og þátttaka fyrirtækja verður sett inn þegar upplýsingar liggja fyrir.
Dagsetning, opið hús og þátttaka fyrirtækja verður sett inn þegar upplýsingar liggja fyrir.
Markaðsdagur 14. júní kl. 14:00–16:00
Opna viðburðarsíðuOpið hús 5. júní kl. 13:00–16:00
Opna viðburðarsíðuOpið hús í Ráðhúsinu og á hafnarsvæði.
Opna viðburðarsíðu
Hér má sjá brot af stemningunni frá fyrri viðburðum.








Gullkistan Vestfirðir er lifandi vettvangur þar sem gestir fá að kynnast fólkinu, fyrirtækjunum, menningunni og hugmyndunum sem skapa verðmæti á Vestfjörðum.
Verkefnið dregur fram fjölbreytileikann á svæðinu og býður gestum að sjá hvað gerist á bak við tjöldin hjá fyrirtækjum, stofnunum, listafólki og frumkvöðlum. Þetta er tækifæri til að fá innblástur, mynda tengsl og njóta sín í ekta vestfirskri stemmningu.
Heimsæktu fyrirtæki og þátttakendur, fáðu innsýn í starfsemina og sjáðu hvað verður til í sjávarþorpum, bæjum og byggðum um alla Vestfirði.
Njóttu viðburða, sýninga, matar, handverks, frásagna og stemmningar sem endurspeglar sterka sjálfsmynd og fjölbreytt mannlíf svæðisins.
Hittu fólkið á bak við hugmyndirnar, fáðu innblástur og upplifðu kraftinn sem liggur í samstarfi, nýsköpun og vestfirskri seiglu.