Reykhólahreppur auglýsir eftir að ráða öflugan einstakling í teymi áhaldahúss. Leitað er eftir einstaklingi sem býr yfir drifkrafti, samskiptafærni, með gott verkvit og er sjálfstæður í vinnubrögðum. Starfið er mjög fjölbreytt og viðkomandi verður hluti af viðhaldsteymi sem sinnir fasteignum og innviðum sveitarfélagsins og öðrum tilfallandi verkefnum. Starfið heyri undir framkvæmdasvið og næsti yfirmaður er umsjónarmaður fasteigna. Um er að ræða 100% starf.
- Almennt viðhald á fasteignum og innviðum sveitarfélagsins
- Vinna við hafnar-, vatns- og fráveitumannvirki
- Umhirða og fegrun bæjarins, s.s. sláttur, gróðursetning og hellulagnir
- Störf á endurvinnslusvæði sveitarfélagsins
- Ýmis viðhaldsþjónusta við stofnanir sveitarfélagsins
- Vetrarþjónusta á stígum og við stofnanir sveitafélags
- Önnur tilfallandi verkefni í samráði við umsjónarmann fasteigna
- Iðnmenntun sem nýtist í starfi eða reynsla af sambærilegum verkefnum
- Geta til að vinna í teymi og sjálfstætt
- Fagleg vinnubrögð
- Þjónustulund, heiðarleiki og færni í mannlegum samskiptum
- Almenn tölvukunnátta
- Ökuréttindi skilyrði
- Vinnuvélaréttindi og aukin ökuréttindi kostur
Fríðindi í starfi
Starfsfólk sem flytur til Reykhólahrepps í fast starf hjá sveitarfélaginu fær flutningsstyrk.
Á Reykhólum er að finna margvíslega þjónustu. Þar er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli, frístund barna og félagsmiðstöð, hjúkrunar- og dvalarheimili Barmahlíðar, sundlaug, tjaldsvæði, íþróttahús og líkamsrækt, heilsugæsla, Báta- og hlunnindasýning og verslun og veitingasala Bakkabúðarinnar auk ýmissar annarrar þjónustu. Þar starfa Þörungaverksmiðjan hf. og saltverksmiðja Norður & Co ehf. Hótel og veitingastaður er einnig rekið í nágrenni Reykhóla í Bjarkalundi og framundan eru spennandi og áhugaverðir tímar í uppbyggingu og atvinnuþróun sveitarfélagsins á kjörtímabilinu, t.d. á Króksfjarðarnesi, í Garpsdal og í uppbyggingu ferðaþjónustu um sveitarfélagið.