Fara í efni

Um Vestfjarðastofu

Vestfjarðastofa er sjálfseignarstofnun sem tók við verkefnum sem Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða og Fjórðungssamband Vestfirðinga sinntu áður. Undir Vestfjarðastofu heyrir einnig Markaðsstofa Vestfjarða og menningarfulltrúi Vestfjarða.  Stofnfundur Vestfjarðastofu var 1. desember 2017.
 

Tilgangur Vestfjarðastofu er að vinna að hagsmunamálum íbúa, sveitarfélaga, stofnana og fyrirtækja á Vestfjörðum og veita samræmda og þverfaglega ráðgjöf og þjónustu tengda atvinnu- og byggðaþróun, frumkvöðlastarfsemi og menningu í víðum skilningi.

Markmið Vestfjarðastofu er að efla atvinnulíf á Vestfjörðum, stuðla að velferð íbúa og styrkja Vestfirði sem búsetukost og áfangastað ferðamanna. Markmiði sínu hyggst Vestfjarðastofa ná með öflugu samstarfi atvinnulífs, sveitarfélaga, ríkisvalds og stoðkerfis hins opinbera.
 
Stefna Vestfjarðastofu 2017 - 2027 var sett fram á stofnfundi og má finna hér
 
Stjórn stofnunarinnar er skipuð níu aðalmönnum og jafnmörgum til vara. Fimm þeirra koma af vettvangi sveitarstjórnarmála en fjórir af vettvangi atvinnulífs og menningar. Stjórnarmenn af vettvangi sveitarstjórna eru þeir sömu og skipa stjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga.
Starfsstöðvar Vestfjarðastofu eru á Ísafirði, Patreksfirði, Hólmavík, og Þingeyri. 
 
 
Starfsáætlanir Vestfjarðastofu
 
Ársreikningar Vestfjarðastofu
 
Ársskýrslur Vestfjarðastofu
Ársskýrsla 2022
 
Stjórn Vestfjarðastofu frá 24. maí 2023
Jóhanna Ösp Einarsdóttir, formaður, Reykhólahreppur 

Aðalsteinn Egill Traustason, Ísafjarðarbær
Nanný Arna Guðmundsdóttir, Ísafjarðarbær
Lilja Magnúsdóttir, Tálknafjarðarhreppur
Magnús Ingi Jónsson, Bolungarvíkurkaupstaður
Gauti Geirsson, Háafell
Halldór Halldórsson, Íslenska Kalkþörungafélagið
Elísabet Gunnarsdóttir, Háskólasetur Vestfjarða
Friðbjörg Matthíasdóttir, Gistihúsið við höfnina (Búbíl ehf)


Varastjórn Vestfjarðastofu frá 24. maí 2023:

Þorgeir Pálsson, Strandabyggð
Jóhann Birkir Helgason, Ísafjarðarbæ
Gylfi Ólafsson, Ísafjarðarbæ
Anna Vilborg Rúnarsdóttir, Vesturbyggð
Bragi Þór Thoroddsen, Súðavíkurhreppi
Jónas Heiðar Birgisson, Arnarlax
Lilja Sigurðardóttir, Fiskvinnslan Oddi 
Sif Huld Albertsdóttir, Dokkan brugghús
Gunnþórunn Bender, Westfjords Adventures
 

 Skipurit Vestfjarðastofu

 
Skipurit Vestfjarðastofu
 
Fulltrúaráð 
Aðili Fulltrúi  Varamaður 
Arnarlax Jónas Heiðar Birgisson Silja Baldvinsdóttir
3X Technology Halldór Jónsson Karl Ásgeirsson
Háskólasetur Vestfjarða Peter Weiss Elísabet Gunnarsdóttir
Fræðslumiðstöð Vestfjarða Sædís María Jónatansdóttir Dagný Sveinbjörnsdóttir
Arna ehf Óskar Örn Hálfdánarson Hálfdán Óskarsson
Artic Sea Farm hf Shiran Þórisson Sten Ove Tveiten 
Reykhólahreppur Jóhanna Ösp Einarsdóttir Árný Huld Haraldsdóttir
Súðavíkurhreppur Bragi Þór Thoroddsen  
Ísafjarðarbær Nanný Arna Guðmundsdóttir Gylfi Ólafsson
Strandabyggð Þorgeir Pálsson Matthías Sævar Lýðsson
Tálknafjarðarhreppur Lilja Magnúsdóttir Ólafur Þór Ólafsson
Bolungarvíkurkaupstaður Magnús Ingi Jónsson Kristján Jón Guðmundsson
Þörungaverksmiðjan hf. María Hildur Maack Björn Samúelsson
Kerecis Ásta María Sverrisdóttir Dóra Hlín Gísladóttir 
Vesturbyggð Jón Árnason  
Hótel Ísafjörður  Hólmfríður Vala Svavarsdóttir  Daníel Jakobsson
Hraðfrystihúsið Gunnvör Kristján G. Jóakimsson Einar Valur Kristjánsson
Kaldrananeshreppur Finnur Ólafsson Eva Katrín Reynisdóttir 
Marigot Einar Sveinn Ólafsson Halldór Halldórsson
Íslenska kalkþörungafélagið Halldór Halldórsson Einar Sveinn Ólafsson
Vesturferðir Jón Auðun Auðunarson  
Orkubú Vestfjarða Elías Jónatansson Sölvi Sólbergsson
Kaupfélag Steingrímsfjarðar Viktoría Ólafsdóttir   
Byggðastofnun Guðbjörg Óskarsdóttir Sigurður Árnason
Kampi Kristján Jón Guðmundsson Albert Haraldsson
Verkís Jóhann Birkir Helgason Gunnar Páll Eydal
Árneshreppur Eva Sigurbjörnsdóttir  
Vallargata ehf.  Óttar Guðjónsson   Ingibjörg Guðmundsdóttir
 
Starfsháttanefnd frá 24. maí 2023
Rebekka Hilmarsdóttir - Formaður  (SV-Vestfirðir)
Viktoría Rán Ólafsdóttir  (Strandir)
Kristján Jón Guðmundsson  (NV- Vestfirðir)