Fara í efni

Kynslóða- og skoðanaskipti á Sjávarútvegsráðstefnunni 2026

Fréttir

Sjávarútvegsráðstefnan var haldin í Reykjavík 5-6 nóvember 2026 og átti Vestfjarðastofa fulltrúa þar til að fylgjast með umræðunni og þróuninni í greininni.

Mörg áhugaverð erindi voru flutt en útflutningur á óunnum afla, nýting hliðarstrauma og kynslóðaskipti voru leiðarstef í umræðunni. Á ráðstefnunni komu saman aðilar úr greininni til að miðla þekkingu, skiptast á skoðunum og ræða framtíð sjávarútvegs.

Það er gjarnan kunnuglegur bragur á Sjávarútvegsráðstefnunni enda hafa margir þátttakenda starfað saman um árabil. Þessi tengsl skapa góðan grundvöll fyrir opnar og líflegar umræður og var ráðstefnan í ár engin undantekning.

Sveinn Agnarsson frá Háskóla Íslands fjallaði um útflutning á óunnum afla, sem nær hámarki yfir sumartímann. Í erindi hans kom fram að framboð á þorski hefði dregist saman á Norður-Atlantshafi, að Íslandi undanskildu. Sveinn fór einnig yfir samfélagsleg áhrif útflutningsins og benti meðal annars á neikvæð áhrif á byggðirnar.

Nýting hliðarstrauma felur í sér tækifæri til aukinnar verðmætasköpunar í sjávarútvegi. Í umræðum kom þó fram að ýmsar áskoranir fylgdu þeirri nýtingu, meðal annars varðandi meðhöndlun hráefnis og kröfur matvælareglugerða. Lögð var áhersla á að hráefni sem ætlað væri til matvælaframleiðslu þyrfti að meðhöndla sem matvæli í gegnum allt vinnsluferlið. Flokkun þess sem úrgangs einhversstaðar í ferlinu kemur í veg fyrir slíka nýtingu síðar.

Fram undan eru ör kynslóðaskipti í sjávarútvegi og voru líflegar umræður í málstofu um það efni. Gauti Geirsson hjá Háafelli fjallaði þar um það traust sem honum var sýnt hjá HG og varð til þess að hann hóf nám í Tromsø og Páll Snorrason frá Eskju á Eskifirði lagði áherslu á mikilvægi samstarfs ólíkra kynslóða svo að þekking og reynsla héldust innan fyrirtækja þegar eldri starfsmenn færu á eftirlaun.

Sjávarútvegsráðstefnan er árlegur vettvangur þekkingarmiðlunar og samtals um þróun greinarinnar. Fjölbreytt erindi og líflegar umræður í ár endurspegluðu þann kraft sem býr í sjávarútvegi og þau fjölmörgu viðfangsefni og tækifæri sem fram undan eru.