Fara í efni

BOCOD

BOCOD

Vestfjarðastofa er þátttakandi í verkefninu BOCOD, Boosting Continuity and Digitalisation of Rural Region Businesses og er það til þriggja ára. Markmið verkefnisins er að efla nýsköpun, sjálfbærni og rekstrarhæfni fyrirtækja í dreifbýli með áherslu á stafræna þróun og undirbúning eigendaskipta. Með því að bregðast við áskorunum eins og fólksfækkun og öldrun íbúa, leitast verkefnið við að tryggja áframhaldandi atvinnu og þjónustu í jaðarbyggðum.

BOCOD verkefnið hófst í apríl 2025 eftir að hafa hlotið styrk úr Norðurslóðaáætlun ESB (Northern Periphery and Arctic Programme). Að verkefninu koma einnig Munster Technological University (MTU) – (Hincks Centre), Írlandi, sem jafnframt sjá um verkefnastjórn, Lapland University of Applied Sciences, Finnalandi, Business Joensuu Ltd., Finnalndi, Finland University of Oulu, Finnlandi og Austurbrú á Íslandi. Fræðslumiðstöð Vestfjarða er samstarfsaðili verkefnisinns þar sem verkefnið snýr að markvissari stafrænni þjálfun og stuðningu við kynslóðaskipti.

Verkefnið felur einnig í sér þróun nýrra verkfæra og ferla sem miða að því að aðstoða fyrirtæki við kynslóðaskipti og tæknivæðingu eigenda til dæmis með því að nýta gervigreind í markaðssetningu og verkefnaöflun.

Hlutverk Vestfjarðastofu í verkefninu verður að nýta sérþekkingu sína á sviði byggða- og atvinnuþróunar.

· Þróar og innleiðir þjálfunaráætlanir til að efla stafræna hæfni lítilla og meðalstórra fyrirtækja á Vestfjörðum.

· Styður eigendaskipti og arftakaáætlanir með það að markmiði að tryggja rekstrarframvindu fyrirtækja í dreifbýli.

· Kortleggur stuðningsúrræði og helstu áskoranir sem fyrirtæki á svæðinu standa frammi fyrir.

· Miðlar niðurstöðum verkefnisins til hagsmunaaðila og styður innleiðingu á bestu starfsháttum í stafrænum umbreytingum og kynslóðaskiptum.

Heildarstyrkur Vestfjarðastofu til verkefnisinns eru €100.000. BOCOD stendur yfir frá 2025 til 2028

Heimasíða verkefnis: https://www.interreg-npa.eu/projects/bocod/home/

Um BOCOD á síðu Norðurslóðaáætlunarinnar: https://www.interreg-npa.eu/projects/bocod/

Starfsmaður verkefnis

Tengd skjöl

bocod-interreg-npa-poster-a3.pdf

Tengdar fréttir