Fara í efni

Styrkumsókn vegna barnamenningarhátíðarinnar Púkans

Verkefnastyrkir Púkans

Púkinn, barnamenningarhátíð á Vestfjörðum, verður haldin dagana 31. mars – 11. apríl 2025. Þema hátíðarinnar var valið af Ungmennaráði Vestfjarða og er það: Vestfirskar þjóðsögur.

Hægt er að sækja um styrki til að vera með viðburði tengda hátíðinni. Markmið með sjóðnum er að tryggja vestfirskum börnum vandaða menningarviðburði til að njóta eða taka þátt í. Viðburðir þurfa ekki að fara fram á meðan á hátíðinni stendur en mælst er til að hægt verði að njóta afraksturs þeirra innan dagsetninga hennar.

Styrkjum er úthlutað til einstakra viðburða, eða raða viðburða. Ekki eru veittir styrkir til rekstrar‐, stofnkostnaðar‐ eða endurbóta eigna eða fyrirtækja. Úthlutað er til lögráða einstaklinga, listhópa, félagasamtaka, stofnana eða fyrirtækja sem koma að menningarviðburðum fyrir börn á Vestfjörðum.

 

Skilyrði fyrir styrkveitingu

Viðburðir skulu tengjast barnamenningarhátíðinni Púkanum

Viðburðir skulu ætlaðir börnum á grunnskólaaldri

 

Annað sem hafa ber í huga

Viðburðir á Púkanum eru að kostnaðarlausu nema annað sé tekið fram

Viðburðir sem haldnir eru á öllum þremur svæðum Vestfjarða njóta forgangs

Leitast verður við að tryggja dreifingu viðburða um alla Vestfirði og getur mat úthlutunarnefndar tekið mið af því

Sótt er um í gegnum umsóknarform á heimasíðu Vestfjarðastofu, þar er einnig aðgengilegt matsblað úthlutunarnefndar

Umsóknarfrestur er til og með 20. janúar 2025 og tilkynnt um úthlutanir í byrjun febrúar.

 

Lokaskil

Styrkir úr sjóðnum eru afgreiddir eftir að samningar um styrkveitingu hafa verið undirritaðir og gegn framvísun fjárhagsáætlunar vegna þess verkefnis sem styrkurinn er veittur til.

Endurgreiða skal veitta styrki ef fyrir liggur að þeim hafi ekki verið varið í tilgreind verkefni og innan þeirra tímamarka sem gefin eru. Hægt er að leita til Skúla Gautasonar, verkefnastjóra Púkans, ef verkefnið tekur breytingum frá umsókn að framkvæmd.

Styrkþegar skulu fylla út lokaskýrslu á vef Vestfjarðastofu um ráðstöfun styrksins ásamt uppgjöri og myndum frá viðburði, þegar viðkomandi verkefni er að fullu lokið í samræmi við styrksamning styrkþega og Vestfjarðastofu.

 

Úthlutunarnefnd

Þrír aðilar frá öllum svæðum Vestfjarða skipi úthlutunarnefnd. Þurfa þeir hvort tveggja að þekkja til vinnu með börnum og menningargeirans. Styðjast þeir við matsblað stýrihóps í vinnu við úthlutanir.

Þá reiti sem eru stjörnumerktir verður að fylla út.

Netfang umsjónaraðila
Sími umsjónaraðila
Stutt lýsing á verkefninu og hvernig nota á styrkinn. Hverjir taka þátt í verkefninu? Hvað verður gert og hvernig?
Hvenær fer verkefnið fram? Athugið að ekki er nauðsynlegt að verkefni fari fram á hátíðinni sjálfri. Verkefnið má fara fram fyrr, en miðað við að afrakstur þess verði sýndur á hátíðinni.
Skólastig


Hvar fer verkefnið fram


Eru aðrir styrkir? Eigið framlag? Húsnæðiskostnaður?
Sláið inn styrkupphæð sem sótt er um.
Hljótist styrkur, hvar á að leggja hann inn? Verður að tengjast kennitölunni hér fyrir ofan.
Mynd sem tengist verkefninu. Myndin má ekki vera varin höfundarrétti.