Töfrar Tálknafjarðar er nafnið sem íbúar Tálknafjarðar völdu yfir byggðarþróunarverkefni Brothættra byggða sem hófst formlega með íbúaþingi dagana 30. og 31. október.

Yfir fjórðungur íbúa tók þátt í íbúaþinginu, en þar komu íbúar saman til að ræða framtíð byggðarlagsins, tækifærin sem þar felast og hvað þurfi að gera til að Tálknafjörður verði enn betri staður til að búa og starfa.
Þátttakan var frábær og umræðurnar bæði líflegar og málefnalegar. Alls voru 26 málefni tekin til umræðu að tillögu íbúanna sjálfra, sem síðan forgangsröðuðu þeim eftir mikilvægi.
Það sem skiptir Tálknfirðinga mestu máli
Samgöngumál voru efst á lista yfir einstök forgangsmál, en þegar niðurstöðurnar eru skoðaðar í heild kemur í ljós að atvinnumál skipa stóran sess í hugum íbúa.
Mörg tækifæri voru rædd til að efla atvinnulíf í Tálknafirði, meðal annars í sjávarútvegi, landbúnaði og ferðaþjónustu. Einnig var rætt um mikilvægi þess að efla ímynd og markaðssetningu Tálknafjarðar og skapa fleiri tækifæri til óstaðbundinna starfa.
En gott samfélag snýst um meira en atvinnu. Íbúar lögðu einnig ríka áherslu á húsnæðismál, skólamál, menningu, afþreyingu og útivistaraðstöðu. Mikilvægt þótti að standa vörð um Tálknafjörð sem fjölskylduvænt samfélag, meðal annars með fjölskylduvænni vinnustöðum.
Þá komu fram fjölmargar hugmyndir um bætta heilbrigðisþjónustu, aðstöðu og félagsstarf eldri borgara, snyrtilegra umhverfi og aukna náttúruvernd.
Börnin hafa líka framtíðarsýn
Nemendur Tálknafjarðarskóla lögðu sitt af mörkum með skilaboðum sem kynnt voru á íbúaþinginu.
Þar kom skýrt fram að börnin kunna að meta margt við að búa í Tálknafirði og voru mjög jákvæð gagnvart samfélaginu og skólanum sínum. Þau nefndu meðal annars náttúruna, samheldnina og fólkið, auk þess sem þeim finnst gott að búa í litlu samfélagi þar sem krakkarnir þekkjast og auðvelt er að fá aðstoð við námið.
En þau eiga sér líka drauma um framtíðina! Meðal hugmynda þeirra voru tréhús, íþróttabraut og fleiri list- og verkgreinar í skólanum. Þau ræddu einnig skólamál, húsnæðismál, afþreyingu og samgöngur – málefni sem voru sömuleiðis ofarlega á baugi hjá fullorðnu þátttakendunum.
Næstu skref
Þótt íbúaþinginu sé lokið er vinnan rétt að byrja þar sem verkefnisstjórn mun nú vinna úr niðurstöðum íbúaþingsins, leiða mótun verkeffnisáætlunar og fylgja henni eftir á verkefnistímanum. Verkefnisstjórnin verður jafnframt tengiliður milli íbúa og samstarfsaðila verkefnisins og mun leggja áherslu á opið samtal og virka þátttöku íbúa í áframhaldandi þróun verkefnisins.

Töfrarnir fólksins
Íbúar Tálknafjarðar sýndu á þinginu að þeir hafa bæði sterkar skoðanir á framtíð samfélagsins og fjölmargar hugmyndir um hvernig megi gera gott samfélag enn betra.
Tálknafjörður býr yfir miklum auðlindum í náttúru, sögu og mannauði. En einn stærsti styrkur byggðarlagsins er fólkið sjálft, hugmyndir þess, frumkvæði og vilji til að vinna saman. Fram undan er svo spennandi vinna við að breyta hugmyndum í verkefni og verkefnum í veruleika.
Töfrar Tálknafjarðar er hluti af verkefnaflokknum Brothættar byggðir sem er á vegum Byggðastofnunar. Markmið verkefnanna er að styrkja samfélög sem standa frammi fyrir íbúaþróun eða öðrum byggðatengdum áskorunum með virkri þátttöku íbúa og staðbundinni þróunarvinnu. Lesa má meira um Brothættar byggðir á heimasíðu Byggðastofnunnar.