Fara í efni

Hampiðjan leitar að starfsfólki í björgunarbátaþjónustu

Störf í boði

Hampiðjan leitar að starfsfólki í björgunarbátaþjónustu sína í Neskaupstað og á Ísafirði. Björgunarbátaþjónusta er eftirlitshlutverk sem felur í sér skoðanir og viðhald á björgunarbátum ásamt segldúkasaumi.  

Um Hampiðjuna:

Hampiðjan er leiðandi fyrirtæki í heiminum í þróun, sölu og þjónustu á framúrskarandi veiðarfærum til fiskiskipa. Fyrirtækið er jafnframt í fararbroddi í þróun og framleiðslu á ofurköðlum, sem seldir eru víða um heim. Hampiðjan Ísland rekur fimm starfsstöðvar víðs vegar um landið sem og nýja og glæsilega verslun að Skarfagörðum 4. 

Sjálfstæði, jákvæðni og þjónustulund eru mikilvægir eiginleikar sem viðkomandi þarf að búa yfir. Auk þess er æskilegt að hafa góð tök á ensku og búa yfir góðri almennri tölvukunnáttu. 

Mögulegar starfsstöðvar: Neskaupstaður og Ísafjörður. 

Umsóknarfrestur er til og með 22. nóvember 2021. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og henni þarf að fylgja starfsferilskrá. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni og uppruna, eru hvattir til að sækja um starfið.  Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.

Nánari upplýsingar veitir Hafdís Ósk Pétursdóttir (hafdis@intellecta.is) í síma 511-1225.