13. október 2026
Störf í boði
Starfsfólk óskast í heimaþjónustu á starfssvæði félagsþjónustu Stranda og Reykhólahrepps.
Um er að ræða hlutastörf sem staðsett eru á Reykhólum og á Hólmavík.
Markmið starfs er að styðja við daglegt líf og þátttöku í samfélaginu.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum sambands íslenskra sveitarfélag og viðkomandi stéttarfélaga.
Upplýsingar eru veittar í síma 451-3510 og fyrirspurnir og umsóknir má einnig senda á felagsmalastjori@strandabyggd.is
Við hvetjum áhugasama, óháð kyni og uppruna að sækja um.
Umsóknarfrestur er til og með 15.10.2026
Umsóknir ásamt fylgigögnum sendist Hlíf Hrólfsdóttur, félagsmálastjóra, Hafnarbraut 25, 510 Hólmavík.
Einnig má senda á netfang: felagsmalastjori@strandabyggd.is