Fara í efni

Eimskip - Vöruþjónusta á Patreksfirði

Störf í boði

Eimskip leitar að þjónustulipru og drífandi starfsfólki í vöruhúsaþjónustu félagsins á Patreksfirði. Um er að ræða framtíðarstarf í dagvinnu. Við leitum að einstaklingi sem endurspeglar gildi Eimskips: liðsheild, framsækni, áreiðanleiki og virðing.

Hjá Eimskip Patreksfirði starfar öflugur og samhentur hópur fólks í fjölbreyttum störfum sem snúa að þjónustu og dreifingu á vörum. Mikil áhersla er lögð á þjálfun og öryggismál hjá Eimskip og nýtur starfsfólk okkar góðs af stöðugri fræðslu og stuðningi, sem tryggir að öll séu vel undirbúin til að takast á við fjölbreytt verkefni og áskoranir.

Við hvetjum öll kyn til að sækja um. Eimskip leggur áherslu á jafnrétti, heilsu og vellíðan starfsfólks þar sem markvisst er unnið í samræmi við jafnréttisáætlun að jafnri stöðu óháð kyni og leitast eftir því að hafa vinnuumhverfið sem öruggast og heilsusamlegast.

 
Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vöruhúsaþjónusta og afgreiðsla
  • Samskipti við viðskiptavini
  • Losun og lestun flutningabíla
  • Önnur tilfallandi verkefni
 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Lyftarapróf (J) er æskilegt
  • Almenn tölvukunnátta
  • Góð færni í íslensku- og/eða ensku
  • Framúrskarandi þjónustulund og jákvæðni
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
 
Fríðindi í starfi
  • Fjölbreytt verkefni og góður starfsandi í samhentu teymi
  • Aðgangur að öflugu starfsmannafélagi sem m.a. rekur orlofshús um allt land
  • Heilsu- og hamingjupakki sem inniheldur samgöngustyrk og styrki fyrir líkamsrækt, sálfræðiþjónustu og fleira.
 

Sækja um starf