Heilbrigðisstofnun Vesturlands óskar eftir sjúkraflutningamanni til starfa til að sinna bakvöktum og útköllum.
Helstu verkefni og ábyrgð
-
Meta áverka eftir slys, veita fyrstu hjálp og flytja sjúklinga á sjúkrastofnun ef með þarf.
-
Umhirða sjúkrabíla og umsjón með að allur búnaður sé til staðar og í lagi.
-
Sjúkraflutningamenn þurfa að geta unnið undir talsverðu álagi sem tengist því að koma að fólki í mjög erfiðum aðstæðum.
-
Unnið eftir gildandi lögum og reglugerðum og starfsreglum stofnunarinnar.
Hæfniskröfur
-
Viðurkennt nám í sjúkraflutningum og starfsleyfi landlæknis er kostur.
-
Gilt ökuskírteini er skilyrði og kostur að vera með gild ökuréttindi til að stjórna vörubifreið (C eða C1-réttindi).
-
Góð íslensku og ensku kunnátta er skilyrði.
-
Gerð er krafa um áreiðanleika í starfi, hæfni til að sinna fjölbreyttum verkefnum og góða færni í mannlegum samskiptum.
-
Sjúkraflutningamaður þarf að vera í góðu líkamlegu og andlegu formi.
-
Hreint sakavottorð
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna hafa gert.
Með umsókn skulu fylgja upplýsingar um menntun og fyrri störf auk afrits af ökuskírteini og sakavottorði.
Starfshlutfall er 0%
Umsóknarfrestur er til og með 20.10.2026
Nánari upplýsingar veitir
Sigurður Einar Sigurðsson
Tölvupóstur: sigurdur.e.sigurdsson@hve.is