Fara í efni

Arctic Fish - Starfsmenn í sjóeldisdeild

Störf í boði

Langar þig að prófa eitthvað nýtt?

Arctic Fish leitar að fólki til að starfa við sjóeldi á Vestfjörðum.

Við leitum að almennum starfsmönnum og fólki með skipstjórnar- eða vélstjórnarréttindi til starfa í Patreksfirði, Tálknafirði og Arnarfirði.

Starfið er fjölbreytt og hentar fólki sem hefur gaman af því að vinna utandyra, takast á við ólík verkefni og vera hluti af góðu teymi. Reynsla af fiskeldi er ekki nauðsynleg – það mikilvægasta er að vera duglegur, áreiðanlegur og tilbúinn að læra.

Hvað felst í starfinu?

  • Fóðrun og eftirlit með eldisfiski.
  • Umsjón með sjókvíum og búnaði.
  • Viðhald og önnur verkefni sem fylgja daglegum rekstri.

Hvað bjóðum við?

  • 7 daga vinna og 7 daga frí – gott tækifæri til að njóta frítímans.
  • Fjölbreytt starf þar sem enginn dagur er alveg eins.
  • Tækifæri til að læra nýja hluti og þróast í starfi.
  • Stuðning við nám og styrki til íþróttaiðkunar.

Hver passar í hópinn?

Við leitum að fólki sem mætir með jákvætt viðhorf, sýnir frumkvæði og kann vel við að vinna með öðrum. Reynsla af fiskeldi, ökuréttindi og skipstjórnar- eða vélstjórnarréttindi eru kostur en ekki skilyrði.

Vinnutími er kl. 7:00–19:00 á virkum dögum og kl. 7:00–17:00 um helgar, sjö daga samfellt og síðan sjö dagar í frí.

Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um. Umsóknir skulu innihalda ferilskrá (CV) og stutt kynningarbréf.

Umsóknarfrestur er til og með 1. Nóvember 2026.

Sækja um starf