Fara í efni

Orkubú Vestfjarða - Sérfræðingur á fjármálasviði

Störf í boði

Orkubú Vestfjarða ohf. leitar að lausnamiðuðum og sjálfstæðum sérfræðingi á fjármálasviði. Viðkomandi þarf að hafa góða þekkingu á bókhaldi og uppgjörsvinnu, tekur frumkvæði og getur stutt teymið í innleiðingarverkefnum og daglegum rekstri.

Orkubú Vestfjarða er fjölskylduvænn vinnustaður sem býður upp á sveigjanlegt og gott vinnuumhverfi. Um fullt starf er að ræða.

 
Helstu verkefni og ábyrgð
  • Almenn uppgjörsvinna, mánaðar- og ársuppgjör
  • Innleiðing og þróun á Microsoft Dynamics 365 Business Central og tengdum ferlum
  • Almennar afstemmingar og skil á gögnum til endurskoðenda
  • Greining og umbætur í ferlum fjármálasviðs
  • Afleysingar á fjármálasviði
  • Önnur tilfallandi verkefni á fjármálasviði
 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Viðskiptafræðimenntun eða önnur viðeigandi menntun
  • Reynsla af fjárhagsbókhaldi og/eða almennri uppgjörsvinnu er nauðsynleg
  • Reynsla af launavinnslu er kostur
  • Almenn góð tölvukunnátta, góð kunnátta í Excel og reynsla af Business Central kostur
  • Sjálfstæð, skipulögð og nákvæm vinnubrögð
  • Frumkvæði, jákvæðni og góð samskiptafærni
 
Fríðindi í starfi
  • Sveigjanlegt og gott starfsumhverfi
  • Styrkur til heilsueflingar
 

Sækja um starf