Áskorun til ráðherra og þingmanna
Landshlutasamtök á öllu landinu og þar með Fjórðungssamband Vestfirðinga hafa sameinast um áskorun þar sem skorað er á ráðherra og alþingismenn að tryggja að við gerð fjárlaga fyrir árið 2016 verði aukin framlög til eftirtalinna málaflokka sem allir eru gríðarlega mikilvægir fyrir byggðaþróun til framtíðar:
Þjónusta við fatlað fólk
Samningar um sóknaráætlun
Samgöngumál (nýframkvæmdir, viðhald og þjónusta)
Almenningssamgöngur
Ljósleiðaravæðing
Landshlutasamtökin eru sem fyrr reiðubúin til að leggjast á árar með sínum kjörnu fulltrúum og ríkisvaldinu við að jafna tækifæri allra landsmanna til atvinnu og þjónustu, jafna lífskjör og stuðla að sjálfbærri þróun byggðarlaga um land allt.
10. nóvember 2015