Vinnustofur um styrkumsóknir í Uppbyggingarsjóð
Nú styttist í að umsóknarfrestur í Uppbyggingarsjóð renni út, en hægt er að sækja um styrki til og með 11. maí næstkomandi. Mikilvægt er að undirbúa umsóknargerð vel til að árangur náist. Af þessu tilefni verða nú haldnar vinnustofur um styrkumsóknir í Uppbyggingarsjóð á þremur stöðum á Vestfjörðum - í þróunarsetrunum á Ísafirði, Patreksfirði og Hólmavík. Þar geta menn komið á ákveðnum tíma og sest niður til að vinna í sínum umsóknum og fengið leiðbeiningar og svör við spurningum frá starfsfólki Fjórðungssambands Vestfirðinga og AtVest.
03. maí 2015