Endurskoðun byggðaáætlunar - fjarfundur
Vestfjarðastofa boðar til fundar ásamt innviðaráðuneyti og Byggðastofnun. Á fundinum verða kynnt fyrstu drög að endurskoðaðri byggðaáætlun með sérstaka áherslu á drög að aðgerðaáætlun hennar. Fulltrúar ráðuneytisins og Byggðastofnunar munu kynna fyrirliggjandi drög og hvetja til skoðanaskipta um þau. Umræður og ábendingar sem fram koma á fundinum verða nýttar við áframhaldandi vinnu og munu meðal annars verða lögð til grundvallar efni í hvítbók sem sett verður í samráðsgátt stjórnvalda í lok maí.
07. apríl 2026