Fara í efni

26 tillögur bárust í hugmyndasamkeppni um útilistaverk á Ísafirði

Fréttir

Hugmyndasamkeppni Hafna Ísafjarðarbæjar um útilistaverk á Ísafirði er lokið. Alls bárust 26 tillögur í samkeppnina. Trúnaðarmaður keppninnar fyrir hönd Sambands íslenskra myndlistarmanna (SÍM), segir dómnefnd eiga vandasamt verk fyrir höndum þar sem margar sterkar og spennandi tillögur hafi borist.

Samkeppnin var haldin samkvæmt samkeppnisreglum SÍM og var um að ræða opna hugmyndasamkeppni í einu þrepi. Öllum var því heimilt að senda inn tillögu og hver þátttakandi mátti senda inn allt að tvær tillögur. Markmiðið er að útilistaverkið verði kennileiti fyrir Ísafjarðarbæ og órjúfanlegur hluti af umhverfi staðarins, sem laði jafnframt að sér gesti og verði myndastopp sem fangar staðaranda Ísafjarðarbæjar.

Dómnefnd hefur nú verið skipuð og tekur brátt til við að fara yfir innsendar tillögur. Dómnefndina skipa fulltrúar verkkaupa og SÍM. Gert er ráð fyrir að hún ljúki störfum um miðjan október og að vinningstillagan verði kynnt á Veturnóttum, sem fara fram dagana 21.–24. október.

Að loknu mati dómnefndar verður ein tillaga valin til útfærslu og uppsetningar, í nánara samkomulagi við viðkomandi listamann. Ekki verða greidd verðlaun fyrir valda tillögu heldur verður samið sérstaklega við listamanninn um útfærslu verksins. Heildarfjárhæð verkefnisins er 15 milljónir króna.

Vestfjarðastofa sinnir verkefnisstjórn samkeppninnar fyrir hönd Hafna Ísafjarðarbæjar.