Laust er til umsóknar starf leikskólakennara við leikskólann Grænagarð á Flateyri. Um er að ræða 100% starf tímabundið frá 1. desember 2026 til 1. október 2027. Til greina kemur að ráða umsækjanda með aðra uppeldismenntun eða starfsmann leikskóla ef ekki fæst leikskólakennari.
Leikskólinn Grænigarður er staðsettur í fallegu umhverfi þar sem stutt er í allt, fjöruna, fjöllin, hvítu ströndina og sveitasæluna. Grænigarður leggur áherslu á jákvætt starfsumhverfi, gleði og kærleika. Áhersla er einnig lögð á gott samstarf við foreldra, hreyfingu, útiveru og frjálsan leik.
Helstu verkefni
Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara, þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn leikskólastjóra.
Hæfniskröfur
- Leyfisbréf leikskólakennara
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
- Jákvæðni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Góð íslenskukunnátta skilyrði
Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Umsóknarfrestur er til og með 9. október 2026. Umsóknir skulu sendar til Hildar Sólmundsdóttur, leikskólastjóra, á hildursol@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja ferilskrá og afrit af leyfisbréfi/prófskírteinum.
Nánari upplýsingar veitir Hildur í síma 450-8260 eða í gegnum fyrrgreint tölvupóstfang. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
-Við þjónum með gleði til gagns-