Óskum eftir starfsmanni á Hjúkrunardeild HVE Hólmavík. Um er að ræða vaktavinnu. Starfshlutfall er 50-100% eða eftir nánara samkomulagi.
Boðið er upp á aðlögun með reyndu og frábæru starfsfólki. Við tökum vel á móti nýjum starfsmönnum.
Helstu verkefni og ábyrgð
Á HVE Hólmavík er gott að starfa og ríkir sérstaklega hlýr og góður starfsandi þar sem mikið er lagt upp úr góðri teymsivinnu allra starfshópa með fagmennsku, umhyggju og virðingu fyrir skjólstæðingum og fjölskyldum þeirra að leiðarljósi.
Starfið felur í sér aðhlynningu og tilfallandi störf á deildinni
Hæfniskröfur
-
Reynsla af aðhlynningu er kostur.
-
Góð hæfni í mannlegum samskiptum.
-
Frumkvæði, áreiðanleiki og jákvætt viðhorf.
-
Að vera í heilbrigðistengdu námi er kostur.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Sótt er um starfið rafrænt á starfatorg.is.
Umsókninni þurfa að fylgja staðfestar upplýsingar um menntun, starfsleyfi og fyrri störf.
Starfshlutfall er 50-100%
Umsóknarfrestur er til og með 07.10.2026