Hér birtist í heild sinni ávarp Aðalsteins Óskarssonar, sviðsstjóra byggðaþróunar og starfsmanns Svæðisskipulagsnefndar, sem hann flutti við undirritun Svæðisskipulags Vestfjarða 2025-2050 við minnisvarða um Kollabúðafundina í Þorskafirði.
”Að þybbast við, ýta á og láta eigi kúgast” Ávarp við undirritun Svæðisskipulags Vestfjarða 2025-2050, 27. ágúst 2026
Ég vill hér í upphafi þakka svæðisskipulagsnefnd og formanni hennar, ráðgöfum, fulltrúum í sveitarstjórnum, atvinnulífi, íbúum á Vestfjörðum og samstarfsfólk á Vestfjarðastofu fyrir samstarfið og óska okkur öllum til hamingju með hið nýja svæðisskipulag.
En hverfum nú til ársins 1848, aðdragandi og síðan umrót eftir uppreisnir í Evrópu sama ár, berast til Íslands. Kveikjan að þessu ástandi var útbreidd óánægja með þáverandi stjórnvöld, kröfur um rétt til stjórnmálaþátttöku, prentfrelsi, aukin efnahagsleg réttindi verkalýðsins, auk uppgangs þjóðernisstefnu.
Íslendingar taka þessa umræðu til sín og horfa til aukinna áhrifa um landsstjórnina.
Mikilvægi samstöðu og skapa vettvang og tengslamyndun
Jón Sigurðsson, fylgdist með þróun mála í Kaupmannahöfn og taldi mikilvægt að á sama hátt yrðu íslendingar líkt og borgarar í Evrópu tækju hér frumkvæði að koma saman og ræða málefni sinna stétta og landssvæða og krefjast breytinga á stjórnkerfi með auknum áhrifum. Lykilþáttur væri að finna samstöðu sín á milli en greina um leið sérstöðu.
Jón tekur þetta upp með sínu stuðningsfólki og baklandi á Vestfjörðum og við Breiðafjörð, um að skapa eigin vettvang á þessu svæði, sem taki á líkan hátt upp umræðu og til að móta kröfugerð. Það má einnig greina, að bæði Jón og hans stuðningsfólk sjá hér tækifæri að formfesta bakland hans.
Forystumenn þessa máls á Vestfjörðum og Breiðafirði, koma úr atvinnulífi, héraðs og landspólitík, framkvæmdavaldi og af geistlegum uppruna. En í mörgum þessara manna þá hrærast þessi hlutverk saman, sem og var ekki tiltökumál á þeim tíma .
Boðað til fyrsta fundar á Kollabúðum, hér í Þorskafirði þann 18. og 19. júní 1849. Staðsetning þótti liggja miðsvæðis miðað við þáverandi samgöngukerfi og söguleg tilvísun til Þorskafjarðarþinga á þjóðveldis og söguöld. Fundinn sóttu um 80 manns víðsvegar af Vestfjörðum og við Breiðafjörð og stóð í tvo daga. Fundurinn ályktaði um hagsmuni og framþróun svæðisins og Íslands. Síðan var ákveðið með framhald fundanna og boðað var til nýs fundar að ári.
Árið eftir, 1850 er byggð upp Kollabúð, með sameiginlegu átaki frá öllum Vestfjörðum, búðin var hlaðinn upp af mönnum úr Reykhólasveit og Geiradal, efni í grind kom úr eyjunum og tjalddúkur ofinn í Reykjafirði norður og nú stóð þingið í þrjá daga.
Framkvæmd, árangur og segla
Því miður glötuðust gögn fundanna að mestu og ég held að það skýri að Guðjón Friðriksson sagnfræðingur sem ritaði sögu Jóns Sigurðssonar, fjallar að litlu leyti með beinum hætti um fundina.
En Guðjón gefur skýra mynd af daglegu starfi Jóns í Kaupmannhöfn, sem þingmanns og talsmann fyrir málum íslendinga og sem á tíðum verktaka hjá dönskum.
Vegna fjarlægðar hafði hann ekki tíma líkt og þingmenn sem bjuggu á Íslandi að vera í beinum samskiptum við sína umbjóðendur, en Vestfirðingar sáu hér sterkan leiðtoga sem og tengsl hans við stjórnkerfið í Kaupmannahöfn. Þeir vörðu hann einnig þegar hann lendir í erfiðum málum síðar meir s.l. fjárkláðamálið og ekki síðasta sinn sem koma upp mál er «kljúfa þjóðina».
Ályktanir og umræða á Kollabúðum hafði áhrif á málflutning Jóns og hann gat vísað til umboðs sem þessir fundir gáfu, bæði fyrir sértæk mál Vestfirðinga og í málum er vörðuðu aukna sjálfstjórn í málefnum Íslands. Til að nefna mál sem leiddu til beinnar niðurstöðu er stofnun Bændaskóla og upphaf skipstjórnarnáms á Íslandi með skipstjórnarnám á Ísafirði, 1862. Hér störfuðu þeir saman Jón og Ásgeir Ásgeirsson, skipstjóri sem hóf á þessum árum vetrardvöl í Kaupmannahöfn. Þilskipaútgerð er hafin og margir erfiðleikar í byrjun, m.a. kennt kunnáttuleysi. Nefnt er að danskir embættismenn hafi ekki verið fylgjandi hugmyndinni að setja skólann á Ísafirði en Reykjavík væri í lagi, en hér var staðið fast að málum og niðurstaðan var að hefja námið á Ísafirði og þá kannski einmitt þar sem málið brann heitast.
Efni Kollabúðafundanna bera síðan svip af þeim sem mættu til fundar, rædd voru verslunarmál, stofnað yrði til samtaka um frjáls og hagkvæm verslunarsamtök og verslunarsambönd. Gerðar og samþykktir um að íslendingar hefðu löggjafarþing og sjálfsstjórn. Ennfremur gerðar tillögur um jarðamat, ný sveitarstjórnarlög, helgidagahald, breytingar á prestaköllum, póstmál, vegamál, læknaþjónustu , fiskverkun og vöruvöndun
Samfelldir fundir að Kollabúðum urðu alls 20 á tímabilinu 1849-1868 en tveir fundir voru haldnir síðar nær aldamótum.
Sagan greipt sögu samfélags og Fjórðungssambands
Við öflun heimilda í þessu stutta ávarpi þá hef ég nefnt sögu Jóns Sigurðssonar. Hinsvegar þá skynjar maður að Kollabúðafundir voru um langa hríð, greyptir í huga Breiðfirðinga og Vestfirðinga. En við lestur gagna frá miðri síðustu öld þá kemur fram sterkur andi og minning um fundina. Hérna eru greinar og frásagnir einstaklinga sem eru fæddir um og eftir aldamót 1900 og eru í samneyti við kynslóðir sem tóku beinan þátt í fundunum eða minningar þeirra færðust til afkomendur þeirra.
Fjórðungssamband Vestfirðinga hefur í nafni sínu sterka tengingu við söguna og sögu Kollabúðafunda og heiðrað hana í gegnum tíðina, kannski sterkast með láta reisa þennan minnisvarða um Kollabúðafundina á 30 ára afmæli sambandsins 1979, nánar tiltekið 29. júlí sama ár. Hvort það var meðvitað eða tilviljun sögunnar að það eru 100 ár á milli fyrsta Kollbúðafundar og fyrsta Fjórðungsþings Vestfirðinga veit ég ekki. En hinsvegar geta þessir aðilar haldið upp á tímamót á sama ári, mætti hugsa til ársins 2049 í þeim efnum og fara t.d. yfir árangur Svæðisskipulagsins sem gildir til 2050.
Lokaorð
Að lokum. Þessi hugmynd að koma hér saman við minnisvarða um Kollabúðafundi, til staðfestingar á samþykkt sveitarfélaga á Vestfjörðum og HMS á Svæðisskipulagi Vestfjarða, hefur því sterka tengingar við samfélög og atvinnulíf á Vestfjörðum á fyrri tímum og fullt tilefni að viðhalda þeim. Vestfirsk sveitarfélög eru í líkum anda með umboð íbúa, að setja fram stefnu og markmið fyrir stjórnvöld að vinna með sveitarfélögnum til framþróunar Vestfjarða.
Það má einnig taka inn anda Kollabúðafunda, nú þegar kemur að því langhlaupi í að hrinda markmiðum svæðisskipulagsins í framkvæmd og framfylgja því og síðar meir endurskoðum stefnu þess. Og vísa hér til þrautseigju sr Ólafs Sívertsen í Flatey, einna forvígismanna Kollabúðafundanna, þar sem hann segir. ”Það eina sem við getum er að þybbast við, ýta á og láta eigi kúgast”