Vestfjarðastofa, Nordic Folkecenter for Renewable Energy og SINTEF (Noregi) hafa nýlega hleypt af stokkunum nýju norrænu verkefni NordWetCap – Nordic Capacity Building for Wetland Restoration and Climate Resilience, sem hlaut styrk úr loftlagssjóði Norrænu ráðherranefndarinnar NKLP
Verkefnið leggur áherslu á endurheimt votlendis sem mikilvæga, náttúrubundna loftslagslausn og sameinar hagnýtar aðgerðir, staðbundið samráð og eignarhald heimamanna
Með stuðningi NKLP vinna samstarfsaðilar að sameiginlegri norrænni nálgun á því hvernig endurheimt votlendis getur farið fram á forsendum heimamanna, með faglegri þekkingu og skili varanlegum árangri fyrir loftslag, lífríki og hagsmuni heimamanna.
Markmiðin eru að:
✔ gera ástæður endurheimtar votlendis skiljanlegri og draga úr skautun
✔ byggja upp staðbundna þekkingu og getu meðal landeigenda og sveitarfélaga
✔ þróa sameiginlega norræna fyrirmynd
✔ skapa varanlegt samstarfsnet: Nordic Community for Ecosystem Restoration (NCER)
Verkefnið felst m.a. í tilraunaverkefni á Íslandi þar sem reynsla, aðferðir og lærdómur verður miðlað áfram og nýtt um öll Norðurlöndin.
