Fara í efni

Hvesta – Starfsmaður á hæfingarstöð

Störf í boði

Hvesta hæfingarstöð sem er vinnu og virknimiðað úrræði fyrir fatlað fólk auglýsir laust til umsóknar starf starfsmanns á hæfingarstöð. Um hlutastarf er að ræða með sveigjanlegu starfshlutfalli. Æskilegast er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Starfið er mjög fjölbreytt og gefandi og fer það fram á dagvinnutíma virka daga vikunnar. Næsti yfirmaður er forstöðumaður Hvestu og skammtímavistunar.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Veita þjónustunotendum stuðning við athafnir daglegs lífs
  • Hafa gaman í vinnunni og vera öðrum fyrirmynd
  • Fylgja eftir þjónustuáætlunum og verklagsreglum
  • Virkja þjónustunotendur til vinnu og ýmissa tómstunda
  • Önnur tilfallandi störf samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði
  • Þjónustulund og jákvæðni í starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og sveigjanleiki
  • Frumkvæði og samviskusemi
  • Almenn ökuréttindi skilyrði

Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag (Kjölur/VerkVest).

Umsóknum skal skilað til Sigþrúðar Margrétar Gunnsteinsdóttur, forstöðumanns Hvestu og skammtímavistunar á sigthrudur@isafjordur.is. Umsóknarfrestur er til og með 25. mars 2026. Með umsókn skal fylgja ferilskrá. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Nánari upplýsingar veitir Sigþrúður í síma 773-7271 eða í gegnum ofangreint netfang.

Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

-Við þjónum með gleði til gagns-