Fara í efni

Arna - Vélstjóri í Bolungarvík

Störf í boði

Mjólkurvinnslan Arna í Bolungarvík óskar eftir að ráða vélstjóra til starfa. Vélstjóri ber ábyrgð á rekstri og viðhaldi tækjabúnaðar fyrirtækisins. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf þar sem áhersla er lögð á öruggan rekstur framleiðslukerfa, fyrirbyggjandi viðhald og stöðugar umbætur.

 
Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með daglegum rekstri og viðhaldi tækjabúnaðar
  • Skipulagning og framkvæmd fyrirbyggjandi viðhalds
  • Bilanagreining og viðgerðir á vélbúnaði og framleiðslulínum
  • Samvinna við framleiðslustjóra og aðra starfsmenn í framleiðslu
  • Samskipti við þjónustuaðila og verktaka
  • Skráning og eftirfylgni viðhaldsverkefna
  • Þátttaka í umbótaverkefnum og þróun tæknikerfa

 

 

 Menntunar- og hæfniskröfur

 

  • Vélstjóraréttindi
  • Reynsla af rekstri og viðhaldi vélbúnaðar í iðnaði kostur
  • Þekking eða reynsla af sjálfvirknikerfum og PLC-stýringum kostur
  • Góð hæfni í bilanagreiningu og lausnamiðuð hugsun
  • Góðir samskiptahæfileikar og skipulagshæfni
  • Sjálfstæð vinnubrögð og ábyrgð í starfi

 

Góð íslenskukunnátta og grunnfærni í ensku skilyrði