Fara í efni

Vestfirðir verði hluti af Hringvegi 1

Fréttir Innviðir
Starfshópurinn með Eyjólfi Ármannssyni innviðaráðherra. Frá vinstri eru: Valgerður Gréta Benediktsdó…
Starfshópurinn með Eyjólfi Ármannssyni innviðaráðherra. Frá vinstri eru: Valgerður Gréta Benediktsdóttir, Hólmfríður Sveinsdóttir, Eyjólfur Ármannsson, Sigríður Ólöf Kristjánsdóttir og Valtýr Þórisson formaður hópsins. Á myndina vantar Jón Árnason.

Starfshópur sem Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra skipaði leggur til að vegir nr. 60 (Vestfjarðavegur) og nr. 61 (Djúpvegur) verði skilgreindir sem hluti af Hringvegi 1, aðalþjóðveginum sem tengir saman landshluta í stað þess að stærri hringur um Vestfirði yrði skilgreindur Hringvegur 2. Það muni jafna stöðu Vestfjarða gagnvart öðrum landshlutum og styrkja byggðir á svæðinu.

Innviðaráðherra skipaði starfshópinn haustið 2025 og var honum falið var að skoða kosti og galla þess að merkja veg um Vestfirði (nr. 60, 61, 62, 63 og 68) sem hringveg sem fengi vegnúmerið 2. Hugmyndin um hringveg 2 er líklega nærri tíu ára gömul og hófst þegar hylla fór undir Dýrafjarðargöng og vegi um Dynjandisheiði og í Gufudalssveit. Þær vegbætur hafa gjörbreytt samgöngulandslaginu á Vestfjörðum og er farið að sjá fyrir endann á þeim með fyrirhuguðum verklokum á næsta ári.

Fýsilegasti kosturinn að vera hluti af hringveginum
Starfshópur innviðaráðherra skilaði niðurstöðum sínum til ráðherra síðasta fimmtudag. Niðurstaða starfshópsins er að ekki sé fýsilegt að merkja vegina sem um ræðir með vegnúmerinu 2 einkum vegna þess hvernig íslenska vegnúmerakerfið er byggt upp og þeirra væntinga um gæði vega sem falist gætu í eins stafs vegnúmeri. Starfshópurinn leggur til að í stað þess að fara þá leið að merkja fimm vegkafla, hringveg um Vestfirði með vegnúmerinu 2 verði vegir 60 frá Bröttubrekku um Dynjandisheiði og Dýrafjarðargöng til Ísafjarðar og vegur 61 frá Þröskuldum um Steingrímsfjarðarheiði og Djúp hluti af Hringvegi 1 um Ísland.

Megintilgangur Hringvegarins (þjóðvegar 1) er að tengja saman landshluta í eina samfellda heild með einum aðalvegi. Hlutverk hans er að tryggja grunnsamgöngur íbúa, ferðafólks, vöruflutninga og þjónustu milli landshluta. Hringvegurinn á að vera burðarás atvinnulífs með flutningi fólks og farms. Helstu rök starfshópsins fyrir því að skilgreina tvo meginvegi um Vestfirði sem hluta af Hringvegi 1 er að það muni jafna stöðu Vestfjarða gagnvart öðrum landshlutum og styrkja byggð á svæðinu.

Við upphaf greiningar starfshópsins taldi að hann að skilgreining Hringvegar 2 gæti orðið öflugt markaðstæki fyrir Vestfirði, jafnað búsetuskilyrði og stuðlað að auknum ferðamannastraumi. Nafnabreyting ein og sér væri þó ekki nægjanleg til að ýta undir aukið viðhald og vetrarþjónustu til dæmis á vegi 63 og 68 og væri auk þess líklegt til að skapa væntingar um betri vegi en þeir tilteknu vegkaflar geta staðið undir. Það er því mat hópsins að þessi útfærsla sé afar góður kostur og geti mun fremur jafnað stöðu Vestfjarða en upphaflega hugmyndin.

Vestfjarðaleiðin sterkari en hringvegur 2
Þegar hafist var handa við gerð Dýrafjarðarganga var farið að skoða með hvaða hætti mætti nýta hringleiðina sem myndast þegar kominn er greiðfær vegur á þjóðvegi 60 og heilsárstenging á milli sunnan og norðanverðra Vestfjarða. Þróunarverkefnið Hringvegur 2 varð formlega til árið 2018 og fékk síðar nafnið Vestfjarðaleiðin sem síðan þá hefur fest sig í sessi sem ferðamannaleið um Vestfirði og Dali.

Þegar kemur að ferðaþjónustu telur starfshópurinn líklegt að vörumerkið „Vestfjarðaleiðin“ sé sterkara en Hringvegur 2 fyrir Vestfirði og því væri vegnúmerið 2 ekki brýnt fyrir ferðaþjónustu á svæðinu.

Niðurstaða starfshópsins er því eins og áður segir sú að í stað þess að breyta fimm vegnúmerum á Vestfjörðum í Hringveg 2 verður tveimur meginvegnúmerum breytt í Hringveg 1. Þannig verði Vestfirðir ekki lengur eina heila landssvæðið á Íslandi sem þjóðvegur 1 liggur ekki um.

Hér má lesa frétt Innviðaráðuneytisins um málið