Fara í efni

Störf án staðsetningar - Samband íslenskra sveitafélaga

Störf í boði

Samband íslenskra sveitafélaga auglýsir 2 störf óháð staðsetningu. Sérfræðing á hag- og upplýsingasviði og sérfræðing á kjarasviði. Umsóknarfrestur er til og með 28. mars 2022.

Sérfræðingur á kjarasvið

Samband íslenskra sveitarfélaga leitar að einstaklingi í starf sérfræðings á kjarasviði sem hefur til að bera frumkvæði, hæfni í mannlegum samskiptum, nákvæmni í vinnubrögðum og getu til að vinna sjálfstætt og með öðrum að fjölbreyttum verkefnum. Starfslýsing.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Annast gerð reiknilíkana vegna kostnaðarmats kjarasamninga.
  • Hefur umsjón með framkvæmd og úrvinnslu kjararannsókna kjarasviðs.
  • Annast sérfræðiráðgjöf um framkvæmd og túlkun kjarasamninga ásamt gerð leiðbeininga til sveitarfélaga vegna launaútreikninga.
  • Vinnur með sviðsstjóra og öðrum sérfræðingum kjarasviðs að undirbúningi og gerð kjarasamninga og tekur þátt í kjaraviðræðum.
  • Innir af hendi önnur verkefni sem sviðsstjóri eða framkvæmdastjóri felur honum.

Hæfnikröfur

  • Háskólapróf í viðskiptafræði, hagfræði eða skyldum greinum sem nýtist í starfi. Framhaldsnám er kostur.
  • Góð þekking á kjarasamningsumhverfi opinbers vinnumarkaðar.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og er nákvæmur í vinnubrögðum
  • Þekking og áhugi á málefnum sveitarfélaga.
  • Hæfni til að miðla upplýsingum í ræðu og riti.

Frekari upplýsingar um starfið

Um er að ræða fullt framtíðar starf. Nánari upplýsingar veitir Inga Rún Ólafsdóttir, sviðsstjóri kjarasviðs, netfang: inga.run.olafsdottir@samband.is, eða Valur Rafn Halldórsson, sviðsstjóri rekstrar- og útgáfusviðs, netfang: valur@samband.is eða í síma 515-4900.

Ferilskrá og kynningarbréf, merkt „Umsókn um starf sérfræðings á kjarasviði“, berist eigi síðar en mánudaginn 28. mars nk. til Sambands íslenskra sveitarfélaga, Borgartúni 30, pósthólf 8100, 128 Reykjavík, eða í tölvupósti til samband@samband.is.

Sérfræðingur á hag- og upplýsingasviði

Samband íslenskra sveitarfélaga leitar að framsæknum sérfræðingi í efnahags- og fjármálum með reynslu af og þekkingu á gagnagrunnum og – vinnslu. Viðkomandi ber ábyrgð á þróun og rekstri gagnagrunna og greiningu gagna.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Kemur að þróun nýrra lausna í gagnamálum s.s. vöruhúsgagna, gagnalón o.fl.
  • Vinnur með sviðsstjóra og öðrum sérfræðingum hag- og upplýsingasviðs að öflun, miðlun og úrvinnslu gagna um sveitarfélög.
  • Tekur þátt í greiningu á fjármálum sveitarfélaga og efnahagsumhverfi þeirra.
  • Innir af hendi önnur verkefni sem sviðsstjóri eða framkvæmdastjóri felur honum.

Hæfnikröfur

  • Háskólapróf í hagfræði eða skyldum greinum. Framhaldsnám er kostur.
  • Haldgóð þekking á efnahagsmálum og málefnum sveitarfélaga.
  • Yfirgripsmikil þekking á hugbúnaði og gagnavinnslu.
  • Reynsla af verkefnum á sviði gagnastjórnunar, eins og viðskiptagreind og vöruhúsi gagna.
  • Reynsla af gagnagreiningu og framsetningu á gögnum.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og er nákvæmur í vinnubrögðum
  • Þekking og áhugi á málefnum sveitarfélaga.
  • Hæfni til að miðla upplýsingum í ræðu og riti.

Frekari upplýsingar um starfið

Um er að ræða fullt framtíðar starf. Nánari upplýsingar veitir Sigurður Á. Snævarr, sviðsstjóri hag- og upplýsingasviðs, netfang: sigurdur.snaevarr@samband.is, eða Valur Rafn Halldórsson, sviðsstjóri rekstrar- og útgáfusviðs, netfang: valur@samband.is eða í síma 515-4900.

Ferilskrá og kynningarbréf, merkt „Umsókn um starf sérfræðings á hag- og upplýsingasviði“, berist eigi síðar en mánudaginn 28. mars nk. til Sambands íslenskra sveitarfélaga, Borgartúni 30, pósthólf 8100, 128 Reykjavík, eða í tölvupósti á samband@samband.is.