Stjórn Vestfjarðastofu lýsir þungum áhyggjum af frumvarpi ríkisstjórnarinnar um hækkun á veiðigjaldi og væntanlegum áhrifum þess á atvinnulíf og samfélög á Vestfjörðum.
Miðað við þær forsendur sem liggja að baki breytingu á veiðigjaldi má telja ljóst að áhrifin verði mjög íþyngjandi og komi afar hart niður á litlum og meðalstórum bolfiskútgerðum. Á Vestfjörðum eru eingöngu litlar og meðalstórar útgerðir í bolfiskveiðum og vinnslu. Þrátt fyrir að frítekjumark hafi verið hækkað, þá verður sú hækkun étin upp að miklu leyti upp vegna aukins þunga í gjaldtöku á þorsk og ýsu í nýjustu breytingum frumvarpsins. Misræmi milli útreikninga ráðuneytis og SFS verður að skýra til þess að hægt sé að treysta útreikningum vegna áhrifa af frumvarpinu.
Miðað við greiningar Deloitte og fyrirtækjanna sjálfra á nýjustu ársreikningum Vestfirskra sjávarútvegsfyrirtækja eru áformin óásættanleg með tilliti til mikillar skerðingar á samkeppnishæfni og framlegð þessara sjávarútvegsfyrirtækja. Slíkur skortur á samkeppnishæfni kemur niður á endurnýjun á tækjabúnaði og fjárfestingu í framþróun, nýsköpun og þjónustukaupum. Fram hafa komið áhyggjur forsvarsmanna minnstu eininganna um tilvistargrundvöll sinn ef breytingarnar ganga eftir sem ber að taka alvarlega. Afleiðingar skertrar samkeppnishæfni og minni fjárfestinga hafa bein áhrif á útsvarstekjur sveitarfélaga og fjölmargar afleiddar þjónustugreinar sem skapa umsvif og tekjur.
Eftir miklar umræður undanfarnar vikur um hækkun veiðigjalda hefur ríkisstjórnin ekki svarað því hvernig staðinn verði vörður um samkeppnishæfni fyrirtækja og samfélaga á Vestfjörðum. Breytingum á frítekjumarki frá fyrstu drögum fylgja aðrar breytingar á útreikningum með tilheyrandi óvissu um endanlega niðurstöðu.
Aðrar íþyngjandi tillögur á samfélög á Vestfjörðum undanfarinna missera svo sem innviðagjald á skemmtiferðaskip, kolefnisgjald og hækkun á sérstökum laxaskatti í ofanálag leggst ofan á allt annað til þess að draga úr þeim viðnámsþrótti sem hefur einkennt síðustu ár á Vestfjörðum.
Stjórn Vestfjarðarstofu skorar á stjórnvöld að bregðast hratt við og endurskoða enn frekar tillögu sína um hækkun á veiðigjaldi þannig að tekið verði tillit til réttmætra áhyggja atvinnulífs og sveitarfélaga á Vestfjörðum. Það er lágmarkskrafa að áhrifin af hærra veiðigjaldi á samfélög á Vestfjörðum verði könnuð með ítarlegri hætti áður en lengra er haldið.