05. maí 2025
Störf í boði
Frumherji auglýsir lausa stöðu stöðvarstjóra bifreiðaskoðunar á Ísafirði
Stöðvarstjóri er ábyrgur fyrir rekstri stöðvarinnar.Við leitum að kraftmiklum og þjónustuliprum einstaklingi í framtíðarstarf. Viðkomandi þarf að vera tilbúinn að leggja sitt af mörkum við að veita framúrskarandi þjónustu til okkar viðskiptavina. Lögð er rík áhersla á jákvæð samskipti og samvinnu ásamt því að viðkomandi falli vel að góðri liðsheild fyrirtækisins.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Halda uppi framúrskarandi þjónustustigi
- Ábyrgð á viðhaldi stöðvar og tækjum hennar
- Framkvæmd skoðana á ökutækjum
- Þátttaka í öðrum tilfallandi verkefnum
Menntunar- og hæfnikröfur:
- Sveinspróf í bifvélavirkjun, bifreiðasmíði eða vélvirkjun er skilyrði.
- Meirapróf
- Góð íslenskukunnátta
- Hæfni í mannlegum samskiptum og þjónustulund
Frekari upplýsingar um starfið í síma 570 9144 eða sigridur@frumherji.is
Öllum umsóknum verður svarað og þær meðhöndlaðar sem trúnaðarmál.