Fara í efni

Lyfja Ísafirði - Sumarstarf

Störf í boði

Við leitum að sumarstarfsmanni í verslun Lyfju á Ísafirði.

Starfið felst í almennum afgreiðslustörfum og ráðleggingum til viðskiptavina okkar um kaup á vörum verslunarinnar. Um er að ræða skemmtilegt og fjölbreytt starf þar sem í boði eru samkeppnishæf laun og gott vinnuumhverfi.

Helstu verkefni:

  • Almenn afgreiðslustörf
  • Ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum
  • Áfyllingar í verslun
  • Afhending lyfja gegn lyfseðli
  • Afgreiðsla á lausasölulyfjum og ráðgjöf um val og notkun þeirra

Hæfniskröfur:

  • Rík þjónustulund
  • Áhugi á mannlegum samskiptum
  • Jákvæðni og gott viðmót
  • Geta til að starfa undir álagi
  • Reynsla af verslunarstörfum er skilyrði
  • Reynsla af störfum í apóteki er kostur

Allir umsækjendur þurfa að hafa ágæta íslensku- og enskukunnáttu.

Nánari upplýsingar veitir Jónas Þ. Birgisson, lyfsali í s. 456 3009 / jonas@lyfja.is.