Fara í efni

Koltra handverkshópur – Sumarstarf á Þingeyri

Störf í boði

Koltra handverkshópur auglýsir eftir starfskrafti í upplýsingamiðstöð og handverkshús á Þingeyri fyrir sumarið 2022.

Um er að ræða tvö 75% störf og er ráðningartíminn 15. maí til 15. september.
Unnið er alla daga vikunnar og yrði dögum skipt eftir samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Yfirumsjón með daglegum rekstri.
  • Móttaka og samskipti við innlenda og erlenda ferðamenn.
  • Almenn miðlun upplýsinga um svæðið.
  • Umsjón og sala á handverki handverkshóps Koltru.

Hæfniskröfur:

  • Nauðsynlegt er að hafa gott vald á íslensku og ensku, þriðja mál er kostur.
  • Umsækjandi verður að geta unnið sjálfstætt og haft frumkvæði.
  • Færni í mannlegum samskiptum og góð þjónustulund er mikilvæg.
  • Gott er að hafa þekkingu á svæðinu eða vilja til að afla sér viðunandi þekkingar til að geta miðlað til annarra.
  • Reynsla á sviði ferðamála og þjónustu er kostur.
  • Umsækjandi verður að hafa náð 20 ára aldri.

Umsóknarfrestur er til og með 15. apríl 2022.

Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf skal senda skriflegar á netfangið: koltrahandverkshopur@gmail.com
Einnig má fá nánari upplýsingar hjá formanni Koltru, Jónínu Hrönn, í síma 659 8135 eða í gegnum netfangið ninkonn@simnet.is