Fara í efni

Icelandair – Flugþjónustufólk á Ísafirði

Störf í boði

Icelandair leitar að öflugum einstaklingum í fjölbreytilegt starf við þjónustu og afgreiðslu flugfarþega á Ísafirði.

Mikil áhersla er lögð á þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum til að tryggja jákvæða upplifun farþega.

Hæfnikröfur:

  • Áhugi og reynsla af þjónustustörfum er mikilvæg
  • Mjög góð íslensku og enskukunnátta
  • Góð tölvukunnátta
  • Gilt bílpróf og vinnuvélaréttindi æskilegt
  • 18 ára lágmarksaldur

Starfssvið:

  • Störf á flughlaði við komur og brottfarir flugvéla svo sem lestun og losun
  • Annast almenna starfsemi í flugstöð
  • Upplýsingagjöf og þjónusta við viðskiptavini m.a. í gegnum síma
  • Innritun farþega og farangurs og eftir tilvikum afgreiðsla á vörusendingum
  • Bókanir og fullnaðarfrágangur á fyrirframgreiddri þjónustu
  • Skoðun skilríkja og afgreiðsla farþega við brottfarahlið. Staðfesta heildarfjölda farþega um borð
  • Önnur þau störf sem yfirmaður kann að fela starfsmanni

Þeir sem valdir verða úr hópi umsækjenda þurfa að sækja undirbúningsnámskeið.

Umsóknarfrestur til og með 15. maí

Áhugasamir sendi inn umsókn ásamt ferilskrá

Nánari upplýsingar veitir:

Þorlákur Ragnarsson, stöðvarstjóri, thorlakurr@icelandair.is

Sækja um