Fara í efni

Flugvallastarfsmaður á flugvellinum á Bíldudal

Störf í boði

Isavia Innanlandsflugvellir óskar eftir að ráða einstakling í flugvallarþjónustu Bíldudalsflugvallar. Starfið felur í sér eftirlit og viðhald á flugvallarmannvirkjum og tækjum. Umsjón og framkvæmd snjóruðnings, hálkuvarna og samskipta við flugvélar um flugradíó, AFIS. Björgunar og slökkviþjónusta er einnig hluti af starfinu. Viðkomandi þarf að ljúka grunnnámi flugradíómanna. Þjálfunin tekur u.þ.b. þrjá mánuði. Auk þess þarf að standast læknisskoðun og þrekpróf.

Hæfniskröfur:

  • Aukin ökuréttindi og vinnuvélaréttindi eru kostur
  • Iðnmenntun sem nýtist í starfi er kostur
  • Reynsla af slökkvistörfum og snjóruðningi er kostur
  • Góð tölvukunnátta er nauðsynleg
  • Gott vald á íslensku og ensku

Unnið er á vöktum og er vaktakerfið mjög fjölskylduvænt. Gert er ráð fyrir að unnið sé í tæpa 7 daga og frí í 7 daga. Unnið er á 8 klst vöktum. Um er að ræða 70% starf

Umsóknarfrestur er til 2. nóvember nk.

Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.

Nánari upplýsingar veitir Arnór Magnússon umdæmisstjóri, arnor.magnusson@isavia.is