Fara í efni

Kerecis - Tækni-/Verkfræðingur í framleiðslu

Störf í boði

Sérfræðingurinn verður hluti af teymi sem sér um framleiðslubúnað, gildingu ferla og tækja (e. Process Validation), ásamt því að veita víðtæka aðstoð við gæðamál. Starfið felur m.a. í sér söfnun og greiningu gagna, skrif á skýrslum, uppfærslum og viðhaldi ferla, og eftirfylgni með viðeigandi stöðlum og reglugerðum. Samhæfing með þverfaglegum teymum í fjölbreyttum verkefnum er nauðsynleg.

Starfsstaður er á skrifstofu Kerecis á Ísafirði og heyrir starfið undir Frumgerða- og framleiðsluþróunarstjóra.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umbætur og viðhald ferla
  • Stuðningur við gæðamál
  • Aðstoð við innleiðingu á nýjum vörum og aðferðum í framleiðslu
  • Gildingar á framleiðslubúnaði

 

Menntunar- og hæfniskröfur

  • B.Sc gráða í verkfræði, tæknifræði, lífvísindum eða skyldum raungreinum
  • 0-2 ára reynsla í tækni-, og eða gæðastarfi
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og teymisvinnu
  • Metnaður, jákvæðni og vilji til að læra