18. september 2026
Fréttir
Uppbyggingasjóður Vestfjarða
Uppbyggingarsjóður Vestfjarða hefur opnað fyrir umsóknir. Hægt er að sækja um styrki til verkefna á sviði menningar, nýsköpunar og atvinnuþróunar. Einnig geta menningarstofnanir sótt um stofn- og rekstrarstyrki, séu þær með starfsemi á heilsársgrundvelli.
Að þessu sinni eru til úthlutunar um 62 milljónir króna, en þar af hefur um 13 milljónum þegar verið ráðstafað í fjölárastyrki, svo til ráðstöfunar nú eru um 48 milljónir. Þær eru ætlaðar verkefnum sem koma til framkvæmda á Vestfjörðum árið 2027.
Umsóknarglugginn er opinn til kl.14:00 þann 21. október 2026. Nánari upplýsingar er að finna á síðu Uppbyggingarsjóðs Vestfjarða.