Þátttakendur í BOCOD-verkefninu komu saman á Vestfjörðum dagana 8.–10. september. Gestir frá Finnlandi, Írlandi og Austurlandi tóku þátt í vinnufundum og kynntu sér vestfirskt atvinnulíf og reynslu af eigenda- og kynslóðaskiptum.
Á fundinum var unnið að næstu skrefum verkefnisins og rætt hvernig styðja megi betur við kynslóðaskipti fyrirtækja skipti í dreifðum byggðum, meðal annars með nýtingu stafrænnar tækni. Farið var í heimsóknir til fyrirtækja á Ísafirði og í nágrenni þar sem kynslóðaskipti hafa átt sér stað, standa nú yfir eða eru fyrirsjáanleg á næstu árum.
Fyrirtæki á landsbyggðinni eru oft mjög tengd samfélögunum sem þau starfa í. Vel heppnuð kynslóðaskipti geta skipt miklu fyrir varðveislu starfa, þjónustu og þekkingar og þar með byggðafestu. Á fundinum kom jafnframt fram mikilvægi þess að huga ekki aðeins að þeim sem taka við rekstrinum heldur einnig eigendum sem eru að undirbúa að hverfa frá oftar en ekki frá sköpunarverki og starfi sínu.
Þó aðstæður þátttökusvæðanna séu ólík eru áskoranirnar víða svipaðar. Samstarfið gefur því tækifæri til að bera saman reynslu, læra hvert af öðru og þróa aðferðir sem nýtast fyrirtækjum og samfélögum í dreifðum byggðum.
Vestfjarðastofa er þátttakandi í BOCOD, sem er styrkt af Norðurslóðaáætlun Evrópusambandsins, Interreg Northern Periphery and Arctic. Markmið verkefnisins er að styrkja getu fyrirtækja til að takast á við eigenda- og kynslóðaskipti og stuðla þannig að áframhaldandi starfsemi og sjálfbæru atvinnulífi á landsbyggðinni.
