Matvælastofnun leitar að jákvæðum og metnaðarfullum einstaklingi í starf sérfræðings við opinbert eftirlit með matvælum. Um er að ræða fullt starf með starfsstöð á Ísafirði, en starfið heyrir undir héraðsdýralækni Norðvesturumdæmis. Starfinu fylgja ferðalög um landið. Umsækjendur þurfa að geta hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Eftirlit með fiskvinnslum og fiskiskipum
- Eftirlit með löndunaraðstöðu og aflameðferð
- Eftirlit með mjólkurvinnslum
- Eftirlit með kjötvinnslum
- Eftirlit með fiskeldi
- Eftirlit með fóðri og áburði
- Önnur tengd eftirlits- og sérfræðistörf
Hæfniskröfur
- Krafa um menntun í matvælafræði, dýralækningum, líffræði eða aðra menntun sem nýtist í starfi
- Þekking á HACCP aðferðafræðinni
- Haldbær þekking og reynsla af vinnu við vinnslu matvæla
- Reynsla af opinberu eftirliti er kostur
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Góð almenn tölvukunnátta
- Sjálfstæði, nákvæmni og skipulögð vinnubrögð
- Vilji / hæfni til að starfa í teymi
- Góð framkoma og lipurð í samskiptum
- Bílpróf er skilyrði
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra náttúrufræðinga hafa gert.
Umsókn skal fylgja prófskírteini, ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir því hvernig umsækjandi uppfyllir hæfnikröfur. Konur, jafnt sem karlar, eru hvattar til að sæja um starfið.
Nánari upplýsingar um stofnunina er að finna á www.mast.is
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 18.05.2022
Nánari upplýsingar veitir
Sigríður Björnsdóttir, héraðsdýralæknir - sigridur.bjornsdottir@mast.is - 5304800