Fara í efni

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða - Starfsfólk í aðhlynningu óskast til starfa á Patreksfirði

Störf í boði

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Patreksfirði óskar eftir að ráða starfsfólk í 70-100% starf við aðhlynningu

Helstu verkefni og ábyrgð

Aðhlynning og önnur tilfallandi verkefni. Þetta er kjörin staða fyrir þau sem vilja öðlast fjölbreytta reynslu í hvetjandi starfsumhverfi.

Á deildinni starfar öflugur hópur og er þar góður starfsandi sem einkennist af samheldni, vináttu, metnaði og gleði.

Hæfniskröfur

  • Góð samskiptahæfni, jákvæðni og rík þjónustulund

  • Samviskusemi og sjálfstæð vinnubrögð

  • Stundvísi

  • Metnaður og ábyrgð í starfi

  • Reynsla af sambærilegu starfi er kostur

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá. Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning hefur verið ákveðin. Umsókn getur gilt í allt að 6 mánuði.

Hjá Heilbrigðisstofnun Vestfjarða starfa rúmlega 270 manns og veitir stofnunin almenna heilbrigðisþjónustu á þremur sviðum; hjúkrunarsviði, heilsugæslusviði og sjúkrasviði, með sjúkrahús á Ísafirði og Patreksfirði.

Patreksfjörður er mjög fjölskylduvænn staður, þar eru leikskóli, grunnskóli, tónlistarskóli og framhaldsskóladeild ásamt öflugu íþróttastarfi. Börn hafa mikið frelsi og tækifærin til útivistar eru allt í kring.Margvísleg starfsemi er á svæðinu og næg atvinnutækifæri fyrir maka.

Starfshlutfall er 70-100%

Umsóknarfrestur er til og með 01.09.2025

Nánari upplýsingar veitir

Sara De La Luz C. Gutierrez, saraluz0689@gmail.com

Sækja um starf