Kynslóðaskipti fyrirtækja í dreifðum byggðum til umræðu á Vestfjörðum
Þátttakendur í BOCOD-verkefninu komu saman á Vestfjörðum dagana 8.–10. september. Gestir frá Finnlandi, Írlandi og Austurlandi tóku þátt í vinnufundum og kynntu sér vestfirskt atvinnulíf og reynslu af eigenda- og kynslóðaskiptum.
Á fundinum var unnið að næstu skrefum verkefnisins og rætt hvernig styðja megi betur við kynslóðaskipti fyrirtækja skipti í dreifðum byggðum, meðal annars með nýtingu stafrænnar tækni. Farið var í heimsóknir til fyrirtækja á Ísafirði og í nágrenni þar sem kynslóðaskipti hafa átt sér stað, standa nú yfir eða eru fyrirsjáanleg á næstu árum.
15. september 2026