07. september 2026
Störf í boði
Arnarlax leitar að öflugum og ábyrgum svæðisstjóra til að leiða daglegan rekstur sjódeildarsvæðis fyrirtækisins á sunnanverðum Vestfjörðum.
Svæðisstjóri ber ábyrgð á daglegum rekstri stöðvarinnar, starfsfólki, skipulagningu verkefna, öryggi, velferð fisks og rekstrarlegum árangri. Hann leiðir teymi fiskeldismanna, skipuleggur og fylgir eftir verkefnum og tryggir að starfsemin sé í samræmi við verklagsreglur og kröfur Arnarlax.
Starfið er bæði stjórnunar- og vettvangsstarf og við leitum því að einstaklingi sem hefur gaman af því að leiða fólk, taka ábyrgð og vera virkur þátttakandi í daglegum rekstri á sjó.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Dagleg stjórnun og skipulagning á starfsemi sjódeildarsvæðisins
- Leiða, styðja og fylgja eftir starfsfólki svæðisins
- Tryggja að starfsemi svæðisins sé í samræmi við verklagsreglur, öryggiskröfur og staðla Arnarlax
- Fylgjast með velferð fisks og líffræðilegum árangri svæðisins
- Skipuleggja og fylgja eftir verkefnum, mannafla og búnaði
- Fylgjast með rekstri og kostnaðaráætlunum svæðisins
- Tryggja réttar skráningar, eftirfylgni og upplýsingagjöf
- Vera í nánu samstarfi við aðra svæðisstjóra og stoðdeildir Arnarlax
Menntunar- og hæfniskröfur
- Viðeigandi menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi er kostur
- Öflug leiðtogahæfni og hæfni til að leiða og hvetja teymi
- Frumkvæði, ábyrgð og sjálfstæði í starfi
- Góð skipulags-, samskipta- og samstarfshæfni
- Hæfni til að taka ákvarðanir og bregðast við breytilegum aðstæðum
- Góður skilningur á rekstri og áhugi á fiskeldi
- Vilji til að taka virkan þátt í daglegum verkefnum svæðisins, bæði á sjó og landi
- Góð almenn tölvukunnátta
Reynsla úr fiskeldi, sjávarútvegi eða sambærilegum rekstri er kostur.
Fríðindi í starfi
- Samkeppnishæf laun
- Tækifæri til að vaxa og þróast í starfi
- Fjölbreytt og krefjandi verkefni
- Öflugt starfsumhverfi og gott samstarf
- Heilsu- og líkamsræktarstyrkur