Vestfirðingar tóku þátt í alþjóðlegu leiðtoganámi í samfélagslegri nýsköpun
Tveir fulltrúar frá Vestfjörðum, þær Anna Björg Þórarinsdóttir frá Galdrasýningunni á Ströndum og Heiðrún Björk Jóhannsdóttir frá Netagerðinni á Ísafirði, tóku nýverið þátt í alþjóðlegu leiðtogaþjálfunarverkefni (Leadership Training Programme) á vegum MERSE verkefnisins. Anna Björg og Heiðrún hafa í eitt og hálft ár tekið þátt í svokölluðu jafningjanámi (peer-to-peer learning), þar sem þátttakendur læra hver af öðrum og deila reynslu úr ólíkum samfélögum.
18. mars 2026