Kynningarfundir um Markaðsstofu, Ferðamálasamtök og Nýsköpunarmiðstöð
Markaðsstofa Vestfjarða, Ferðamálasamtök Vestfjarða og Nýsköpunarmiðstöð Íslands standa fyrir kynningarfundum á Vestfjörðum í þessari viku og var fyrsti fundurinn á Hólmavík í dag, mánudaginn 10. febrúar kl. 12:00-13:30. Góð stemmning var á fundinum og þangað mættir ferðaþjónar víða að. Í dag er einnig fundur á Reykhólum kl. 16:00-17:30 í matsalnum í Reykhólaskóla. Á þriðjudag verður svo fundur á Tálknafirði kl. 12:00 á Hópinu.
10. febrúar 2014