Samgönguáætlun 2011-2022, krafa um breytta forgangsröðun
Stjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga ályktaði í á fundi sínum þann 20. febrúar 2012 um þingsályktun um samgönguáætlun 2011-2022. Hér er stefnuyfirlýsing stjórnar sambandsins sett fram gagnvart þeirri þingsályktun sem nú er til umfjöllunar á Alþingi. Sett er sú krafa að verkefni í landsamgöngum á Vestfjörðum verði forgangsraðað upp á nýtt og verkefnum flýtt. Ályktunin hefur verið send þingmönnum NV kjördæmis, umhverfs og samgöngunefnd og innanríkisráðherra. Samgöngunefnd Fjórðungssambandsins vinnur nú að ítarlegri umsögn sem send verður umhverfis og samgöngunefnd Alþingis.
21. febrúar 2012