Samgönguáætlun 2015-2018. Afgreidd frá Alþingi
Þingsályktun um samgönguáætun 2015-2018 var samþykkt á Alþingi nú dag 12. október. Hér er fagnaðarefni, enda um að ræða mikilvægan áfanga fyrir nýframkvæmdir og endurbyggingu vega á Vestfjörðum, sem beðið hafa nú hátt í þrjú ár að Alþingi staðfesti vilja sinn í málinu. Stærstu framkvæmdirnar eru á vegi um Gufdalssveit, Dýrafjarðargöng, Dynjandisheiði og vegur norður í Árneshrepp. Samþykkt var einnig að leggja til fjármagn til rannsókna á Álftafjarðargöngum
12. október 2016