Innviðafélag Vestfjarða undirritaði samstarfssamning við Bláma
Mikið líf var í höfuðstöðvum Vestfjarðastofu á Ísafirði í gær. Í hádeginu kom Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis–, orku- og loftslagsráðherra og átti léttan hádegisfund með sveitastjórnarfólki á norðanverðum Vestfjörðum. Í beinu framhaldi af því var kynningarfundur á Innviðfélagi Vestfjarða þar sem samstarfssamningur var undirritaður á milli þess og Bláma.
03. september 2024