Fara í efni

Áfram Árneshreppur!

Áfram Árneshreppur!
Verkefni Brothættra byggða í Árneshreppi gengur undir nafninu Áfram Árneshreppur! Meginmarkmið verkefnisins er að stöðva viðvarandi fólksfækkun. 

Verkefnið Brothættar byggðir er ein af aðgerðum Byggðaáætlunar 2014-2017 og er sértækt verkfæri Byggðastofnunar til að aðstoða byggðarlög sem standa höllum fæti. Verkefnið er ætlað byggðarlögum sem glímt hafa við viðvarandi fólksfækkun, fækkun atvinnutækifæra og það að atvinnulíf og þjónusta hafa veikst. Sértæk aðgerð fyrir smærri byggðakjarna og sveitir landsins, sem vegna smæðar sinnar hafa ekki getað nýtt sér önnur úrræði ríkis og sveitarfélaga til stuðnings byggðaþróunar og uppbyggingu samfélagsins.

Verkefnið er unnið í fjórum áföngum; undirbúningi, stefnumótun og áætlanagerð, framkvæmd og lok. Nú er unnið að því að ljúka þriðja áfanga. Verkefnið er til fjögurra ára með möguleika á fimmta árinu ef á þarf að halda. Samþykkt var að framlengja verkefnið þannig að það stendur út árið 2023.

Árlega hafa verið veittir styrkir til verkefna sem styrkja samfélagið í Árneshreppi. Hér til hliðar má sjá styrkveitingar undanfarinna ára og skýrslur um framgang verkefnisins. Umsóknarfrestur vegna styrkja ársins 2023 er útrunninn.

-----------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Smelltu hér til að skila lokaskýrslu vegna styrkúthlutana sem veittar voru 2023

Smelltu hér til að skila lokaskýrslu vegna styrkúthlutana sem veittar voru 2022.

Smelltu hér til að skila lokaskýrslu vegna styrkúthlutana sem veittar voru 2021.