Fara í efni

Starfsfólk

Sigríður Ó. Kristjánsdóttir

framkvæmdastjóri

"Lífið er einstefna - leiðin er áfram"

Sigríður eða Sirrý eins og allir þekkja hana er uppalin í Hnífsdal, ættuð þaðan og frá Bolungarvík en býr á Ísafirði. Hún  er með MSc gráðu í forystu og stjórnun frá Háskólanum á Bifröst og er framkvæmdastjóri Vestfjarðastofu.

Sirrý elskar röð og reglu og finnst fátt skemmtilegra en að skipuleggja viðburði og gerir það þá yfirleitt með hjálp ítarlegs hugarkorts. Sirrý var lengi yfirlýstur antisportisti en það er þetta með örlögin að núna hefur hún gerst ofurkörfuboltamamma sem hikar ekki við að eyða heilu helgunum í íþróttamót. 

Aðalsteinn Óskarsson

sviðsstjóri byggðamála

„Lygn streymir Don“

Aðalsteinn er búsettur á Ísafirði er er Hnífsdælingur af hjarta og sál. Aðalsteinn lærði sjávarútvegfræði í Tromsö og er með diplómagráðu í opinberri stjórnsýslu frá HÍ. Hann er sviðsstjóri byggðasviðs Vestfjarðastofu.

Aðalsteini finnst fátt jafn endurnærandi og að kúpla sig út og fara yfir í Grunnavík og njóta þess þar að fá að vera utan þjónustusvæðis. Það eina sem kemst nálægt þessari gleði hjá Aðalsteini eru góðir barokktónleikar.

Magnea Garðarsdóttir

verkefnastjóri

„Þú getur tekið stelpuna úr sveitinni en ekki sveitina úr stelpunni“

Magnea er sveitastelpa uppalin á mjólkurbúi í Eyjafirði en hefur búið á Ísafirði síðan 2008. Magnea er með BA í ferðamálafræði frá Háskólanum á Hólum. Magnea heldur utan um Sóknaráætlun og Uppbyggingarsjóð ásamt því að sjá um innri mál hjá Vestfjarðastofu

Magnea hefur voða gaman af því að kíkja erlendis til spennandi borga og njóta menningar og matar. Sveitin kallar þó alltaf og finnst Magneu ekkert betra en að kíkja í Eyjarfjörðinn og fá smá sveitailm og mömmumat. 

Margrét J. Birkisdóttir

bókhald

„Njóta, ekki þjóta!“

Margrét eða Gréta eins hún er yfirleitt kölluð er fædd og uppalin á Ísafirði. Gréta sér um bókhald fyrir Vestfjarðastofu auk þess sem hún sér um almennt skrifstofuhald og önnur skipulagsmál.

Gréta er dugleg að ferðast og flakkar mikið en það eru þó fáir staðir sem hún nýtur sín jafn vel á og í heita pottinum í garðinum heima hjá sér.

Skúli Gautason

menningarfulltrúi

„Menning er það sem gerir okkur að mönnum“

Skúli er fæddur í vesturbænum í Reykjavík en bjó lengi á Akureyri. Hann er búsettur á Hólmavík. Skúli er með MA gráðu í menningarstjórnun frá Háskólanum á Bifröst en starfaði lengst af sem leikari. Þessi menntun hentar einkar vel enda heldur Skúli meðal annars utan um menningarverkefni Vestfjarðastofu.

Skúli er menningarviti Vestfjarðastofu enda leikstýrt fjölda leiksýninga, en hann er einnig þekktur fyrir að stofna og leika með hljómsveitinni Sniglabandinu. 

Agnes Arnardóttir

verkefnastjóri

„Þeir fiska sem róa“

Agnes ólst upp á Snæfellsnesi en er líkt og margir aðrir starfsmenn Vestfjarðastofu með tengingar til Akureyrar. Hún er með BA gráðu í ferðamálafræði frá Háskólanum á Hólum en hefur undanfarin ár verið búsett í Noregi. Agnes er verkefnastjóri verkefnisins brothættra byggða á Þingeyri ásamt því að koma að öðrum verkefnum Vestfjarðastofu.

Agnes hefur á stuttum tíma orðið eins og innfæddur Þingeyringur og notar hvert tækifæri til að njóta náttúru og menningar Þingeyrar, hvort sem það er í spjalli í sundlauginni eða úti að ganga með Pjakk, hundinn sinn. 

Þórkatla Soffía Ólafsdóttir

verkefnastjóri

„Dream, Travel, Repeat“

Þórkatla er uppalin á Patreksfirði, hún er með BA gráðu í mannfræði og lauk MA námi í þróunarfræði og alþjóðasamskiptum við Álaborgarháskóla. Þessi fjölbreytta menntun hentar mjög vel enda sinnir Þórkatla fjölbreyttum verkefnum innan Vestfjarðastofu.

Þórkatla elskar að ferðast og vera á flakki og hefur verið búsett víða. Nú síðast var hún búsett í Danmörku og Suður Afríku. En þótt hún ferðist langt þá finnst henni ljúft að vera loksins komin aftur heim.

Guðrún Anna Finnbogadóttir

Teymisstjóri - Atvinnu- og byggðaþróun

„Hugsaðu jákvætt, það er léttara“

Guðrún Anna er fædd og uppalin á Ísafirði en er í dag búsett á Patreksfirði. Guðrún Anna er menntaður sjávarútvegsfræðingur frá HA og er með MSc í umhverfisstjórnun frá Álaborgarháskóla. Guðrún Anna hefur starfað í sjávarútvegsfyrirtækjum sem framleiðslu og gæðastjóri en jafnframt við rannsóknir og ráðgjöf bæði hjá MATÍS á Íslandi og Tecnologisk Institute í Danmörku.

Guðrún Anna hefur einstaklega gaman af því að fara í göngutúra og lætur helst ekki góða bók framhjá sér fara.

Sigurður Líndal Þórisson

Verkefnastjóri

„Menn eiga að hafa vit á því að vera í góðu skapi“ – Dúddi á Skörðugili 

Sigurður er fæddur og uppalin á Lækjamóti í Húnaþingi vestra, en bjó í Lundúnum í tvo áratugi og lærði þar leiklist, og tók MA gráðu í menningarstjórnun frá Lundúnaháskóla. Hann er verkefnisstjóri Sterkra Stranda og með aðsetur á Hólmavík.

Fyrir utan að leikstýra 60 leikritum hefur Sigurður unnið stjórnunarstarf hjá risafyrirtækinu Expedia og verið framkvæmdastjóri Selaseturs Íslands. Hann er yfirleitt of upptekinn til að eiga áhugamál og er óvirkur hestamaður í dag. Ólíkt flestum jafnöldrum sínum hefur hann engan áhuga á því að gefa út hlaðvarp.

Magnús Bjarnason

Verkefnastjóri

"Forvitni og orð eru til alls fyrst"

Magnús er fæddur og uppalin á Ísafirði, en bjó lengst af fyrir sunnan þar til hann sneri aftur árið 2012. Hann er með BS gráðu í viðskiptafræði frá HÍ og MSc gráðu í alþjóðaviðskiptum frá Gautaborgarháskóla. Magnús mun sinna verkefnum á sviði nýsköpunar- og fjárfestinga með það að meginmarkmiði að efla byggð og atvinnulíf á svæðinu.

Magnús stundar kayakróður og útivisti til heilsubótar, en honum finnst nálægð við hafið einstaklega endurnærandi. Annars veit hann fátt betra en að detta í gott spjall eða grúska í einhverjum fróðleik.

Sölvi Guðmundsson

Teymisstjóri - Markaður og menning

„Lífið er stutt, ef þú staldrar ekki stöku sinnum við og lítur í kringum þig, þá gætir þú misst af því“ – Ferris Bueller

Sölvi er fæddur og uppalinn á malbikinu í Kópavogi en flutti til Bolungarvíkur árið 2020 með fjölskyldu sinni. Hann lagði stund á hagfræði í HÍ og er nú að klára MLM gráðu í verkefnastjórnun frá Háskólanum við Bifröst. Hann hefur víðtæka reynslu úr ferðaþjónustu, allt frá almennri leiðsögn, rekstri, öryggis og gæðamálum. Sölvi sinnir verkefnum ferðaþjónustu og kynningarmálum fyrir Vestfjarðastofu.

Þrátt fyrir það að Sölvi sé að þúsaldarkynslóðinni er hann ekki með TikTok, á hvorki rafmyntir né NFT. Hann unir sér best í vatni hvort sem það er að flatmaga í pottinum í Bolungarvík, stýra gúmmíbát niður straumvatn eða dóla út á firði á paddleboardi.

Steinunn Ása Sigurðardóttir

Verkefnastjóri

“Hlutirnir hafa þá tilhneigingu að ganga upp”

Steinunn er fædd á Blönduósi og uppalin í Kópavogi en kolféll fyrir Vestfjörðum árið 2018 þegar hún ákvað að breyta til og skella sér í Lýðskólann á Flateyri. Síðan þá hefur hún vart snúið til baka og vill hvergi annars staðar vera.

Steinunn hefur vítt áhugasvið sem hentar vel þar sem hún sinnir hinum ýmsu verkefnum hjá Vestfjarðastofu, allt frá ferðaþjónustu yfir í byggðamál. Hún er með BA gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands og er að ljúka MPA námi í opinberri stjórnsýslu frá sama skóla. Steinunn hefur líkt og fleiri starfsmenn Vestfjarðastofu mikinn áhuga á leiklist og leiðist ekki að standa á sviði, hvort sem það er í leikriti, kór eða því allra skemmtilegasta, karaoke.