Fara í efni

Gullkistan Vestfirðir 2025 – Vestfjarðasýning í undirbúningi

Sýningin Gullkistan Vestfirðir 2025 fer fram laugardaginn 6. september á milli kl. 12 og 17. Þá verður Íþróttahúsinu Torfnesi á Ísafirði umbreytt í sannkallaða Gullkistu – vettvang þar sem kraftur Vestfjarða í atvinnulífi og menningu birtist í allri sinni dýrð. 

Gullkistan Vestfirðir 2025 er metnaðarfull og fjölbreytt sýning sem kynnir það besta sem svæðið hefur upp á að bjóða. Með slagorðinu „Þar sem hugmyndir blómstra, tengsl myndast og framtíðin fæðist“ leggur sýningin áherslu á Vestfirði sem framsækið og líflegt samfélag byggt á sterkum rótum og hugviti.

Opnað hefur verið fyrir umsóknir fyrir þátttakendur og viljum við sjá taka þátt ólíka aðila af öllum Vestfjörðum – fyrirtæki, frumkvöðla, stofnanir, listamenn og framleiðendur.

Gullkistan er kjörinn vettvangur til að:

  • Kynna vörur og þjónustu fyrir heimamönnum, gestum og fjárfestum
  • Styrkja tengslanetið og skapa ný tækifæri
  • Sýna hvað Vestfirðir hafa upp á að bjóða í atvinnulífi og menningu

Á sýningunni viljum við sjá sem fjölbreyttasta flóru þess sem er að gerast í sjávarútvegi, líftækni, iðnaði, ferðaþjónustu og menningu á Vestfjörðum. Fyrirtæki mega gjarnan bjóða upp á smakk á kynningarbásum sínum því það slær alltaf í gegn á sýningum sem þessari.

Gullkistan Vestfirðir er frábær vettvangur fyrir tengslamyndun þeirra sem starfa á svæðinu og verður einnig boðið upp á hliðarviðburði og skemmtidagskrá til að hámarka gleðina.

Vestfjarðastofa leiðir vinnuna við sýninguna. Skráning stendur yfir til 30. júní og  í meðfylgjandi hlekk má finna frekari upplýsingar um Gullkistuna Vestfirði eins og verðskrá og umsóknareyðublað. Nánari upplýsingar veita gudrunanna@vestfirdir.is eða solvi@vestfirdir.is