Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið stendur fyrir ráðstefnu um menningu, listir og skapandi greinar á Vestfjörðum fimmtudaginn 26. nóvember í Edinborgarhúsinu, Ísafirði.
Skráning er nauðsynleg. Ráðstefnan er þátttakendum að kostnaðarlausu, en gestir greiða sjálfir fyrir kvöldverð. Skráning er opin öllum á meðan húsrúm leyfir - opið er fyrir skráningar til mánudagsins 23.nóvember. Skráning hér
Markmið ráðstefnunnar er að leiða saman listafólk, menningarstofnanir, hagaðila, sveitarfélög og ráðuneyti til samtals um stöðu, styrkleika og framtíðartækifæri á Vestfjörðum.
Á ráðstefnunni verður sjónum beint að því hvernig efla megi menningarstarf og skapandi greinar á svæðinu, styrkja innviði og skapa fjölbreyttari tækifæri til listsköpunar og menningarþátttöku. Sérstök áhersla verður lögð á mikilvægi menningar fyrir lífsgæði, byggðaþróun og öflug samfélög og hvernig tryggja megi aðgengi að listum og menningu óháð búsetu og efnahag.
Ráðstefnan er liður í vinnu ráðuneytisins við að efla samtal við menningarlíf um land allt og byggja upp stuðningskerfi sem tekur mið af sérstöðu, styrkleikum og þörfum hvers landshluta.
Dagskrá - með fyrirvara um breytingar:
Kl. 09:00 Setning ráðstefnu - Gylfi Ólafsson, bæjarstjóri Ísafjarðar
Kl. 09:20 Ávarp menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og undirritun menningarsamnings
Kl. 09:40 Stefna Edinborgarhússins, Ingi Björn Guðnason
Kl. 09:55 Arna Kristín Einarsdóttir, skrifstofustjóri menningar og skapandi greina hjá menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti
Kl. 10:20 Kaffihlé
Kl. 10:30 Skúli Gautason, menningarfulltrúi Vestfjarða
Kl. 10:50 Signý Ormarsdóttir, fyrrum menningarfulltrúi Austurlands
Kl. 11:20 Hátíðir - erindi frá listafólki og frumkvöðlum á Vestfjörðum
Kl. 12:15 Hádegisverður í Edinborgarhúsinu í boði ráðuneytisins
Kl. 13:00 Listamiðstöðvar og sjóðir – stutt kynning
Kl. 13:30 Menningarstofnanir og Listaháskólinn – samtal og samstarf við Vestfirði
Kl. 15:00 Gullkistan Vestfirðir – menning og skapandi greinar, Bryggjusalur
Kl. 16:00 Úthlutun úr Uppbyggingarsjóði Vestfjarða, Edinborgarsalur
Kl. 18:30 Kvöldverður - skráning hér
Þau sem vilja taka þátt í Gullkistunni Vestfirðir geta skráð sig til leiks hér.
Hótel Ísafjörður býður gestum tilboð á gistingu, sjá hér.
Ráðstefnan er haldin í samstarfi við Ísafjarðarbæ, Vestfjarðastofu og Edinborgarhúsið. Hægt verður að fylgjast með ráðstefnunni í beinu streymi.